Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.
- Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
- Fara yfir, ræða og skrá niðurstöður allra skimana sem hafa verið framkvæmdar og bregðast við eftir þörfum
- Ræða/undirbúa fósturskimun við 20 vikur
- Undirbúa skimun fyrir rauðkornamótefnum hjá Rhesus D neikvæðum konum og greiningu á Rhesus D flokki fósturs
- Undirbúa seinni hluta skimunar fyrir GDM ef það á við
- Skima fyrir þunglyndi og kvíða. Nota skal EPDS til að skima fyrir þunglyndi og GAD-7 til að skima fyrir kvíða. Bregðast við niðurstöðum samkvæmt vinnulagi við meðferð þunglyndis og kvíða
- Afla upplýsinga um áfallasögu og ofbeldi, hafi það ekki þegar verið gert. Bregðast við samkvæmt klínískum leiðbeiningum um ofbeldi
- Ræða líkamlegar breytingar á meðgöngu og hvers má vænta næstu vikur, t.d. tíðari þvaglát, tog á legböndum, samdrætti, útferð og kláða
- Ræða tilfinningalegar breytingar, stuðning í parsambandi sem og annan stuðning
- Ræða fósturhreyfingar, fyrstu merki og hvers má vænta næstu vikur
- Meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni
- Meðgöngukvillar, t.d. ógleði, hægðatregða og kláði. Benda á viðeigandi bjargráð og hvenær beri að leita frekari ráða
- Val á fæðingarstað
- Skipulögð fræðsla og námskeið sem eru í boði um undirbúning fæðingar, brjóstagjöf, slysavarnir o.fl.
- Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu
- Endurmeta áætlun í meðgönguvernd