41 vika

Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.

  • Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
  • Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
  • Athuga fósturstöðu
  • Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
  • Ræða um lengda meðgöngu og bjóða framköllun fæðingar og viðeigandi upplýsingar
  • Bjóða belgjalosun ef ákvörðun um framköllun fæðingar liggur fyrir
  • Kynna möguleika á samtali eftir fæðingu hafi það ekki þegar verið gert
  • Bjóða eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu hafi það ekki þegar verið gert
  • Gefa tækifæri til umræðna og spurninga. Veita upplýsingar og benda á viðeigandi fræðsluefni
  • Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu