Klínískar leiðbeiningar um mat og fyrstu viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum.
Æskilegt er að þeir sem nota leiðbeiningarnar hafi sótt námskeið um notkun þeirra, hafi þeir ekki hlotið þjálfun í samskiptum við þá sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Boðið verður upp á slík námskeið eftir þörfum.
Leiðbeinendur á námskeiðunum verða:
- Ástþóra Kristinsdóttir sérfræðiljósmóðir og hjúkrunarfræðingur á ÞÍH
- Valgerður Lísa Sigurðardóttir ljósmóðir á Kvennasviði LSH og klínískur lektor við HÍ.
Þessum leiðbeiningum er ætlað að vera hjálpartæki fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður við greiningu og fyrstu viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum. Markmið þeirra er að auðvelda þolendum að greina frá ofbeldinu svo hægt sé að meta afleiðingar þess á heilsu þeirra og vísa þeim á viðeigandi úrræði eða meðferð. Með leiðbeiningum fylgir bæklingur og flýtispjald. Flýtispjaldið er til þess að auðvelda notkun leiðbeininganna.
Ofbeldi í nánum samböndum: Flýtispjald
Í bæklingnum eru upplýsingar um úrræði fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum
Ofbeldi í nánum samböndum: bæklingur
Þeir sem hafa áhuga á námskeiði skulu hafa samband við Valgerði eða Ástþóru.
Hér á heimasíðu ÞÍH má finna nánari upplýsingar og verklag þegar kemur að heimilisofbeldi/ofbeldi í nánum samböndum.