38 vikur

Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.

  • Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
  • Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
  • Athuga fósturstöðu og gefa viðeigandi upplýsingar
  • Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
  • Kynna möguleika á samtali eftir fæðingu hafi það ekki þegar verið gert
  • Bjóða eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu hafi það ekki þegar verið gert
  • Bjóða framköllun fæðingar við 40-41 viku og viðeigandi upplýsingar hjá 
    • konum með GDMA, 
    • konum sem eru með BMI ≥ 35 
    • konum sem eru 40 ára og eldri
  • Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu
  • Endurmeta áætlun í meðgönguvernd

Hafa í huga

Setja í fókus að fylgja eftir umræðum um fæðingu og ræða það sem verðandi móður og foreldrum er efst í huga þegar meðgöngu er að ljúka og fæðing nálgast.