Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.
- Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
- Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
- Fara yfir, ræða og skrá niðurstöður þeirra skimana og rannsókna sem hafa verið framkvæmdar og bregðast við eftir þörfum
- Bjóða skimun fyrir blóðleysi
- Bjóða bólusetningu gegn kíghósta
- Bjóða Rhesus D neikvæðum konum sem ganga með Rhesus D jákvætt fóstur Rhophylac ® mótefnasprautu
- Gefa vottorð um væntanlegan fæðingardag fyrir fæðingarorlofssjóð
- Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
- Ræða breytingar á meðgöngu og hvers má vænta næstu vikur
- Ræða eftirfarandi þegar við á:
- Þróun tengslamyndunar
- Parsamband, væntingar, kynlíf, andlega líðan, aðlögun að foreldrahlutverkinu
- Brjóstagjöf, óskir, væntingar og undirbúning
- Fæðinguna, óskir, væntingar og undirbúning
- Val á fæðingarstað
- Fæðingarorlof
- Meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni
- Meðgöngukvillar, t.d. samdrættir, tog á legböndum,
brjóstsviði, bjúgur. Benda á viðeigandi bjargráð
- Meðgöngukvillar, t.d. samdrættir, tog á legböndum,
- Gera áhættumat
- konur ≥ 35 ára,
- konur með BMI ≥ 35
- Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu
- Endurmeta áætlun í meðgönguvernd