34 vikur

Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.

  • Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
  • Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
  • Fara yfir, ræða og skrá niðurstöður rannsókna sem gerðar voru við 28 vikna meðgöngu hafi það ekki þegar verið gert
  • Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
  • Ræða eftirfarandi þegar við á:
    • Fæðinguna, óskir, væntingar og undirbúning
    • Ræða upphaf brjóstagjafar, nýburann og fyrstu dagana eftir fæðingu
    • Þróun tengslamyndunar
    • Parsamband, væntingar, kynlíf, andlega líðan, aðlögun að foreldrahlutverkinu
  • Meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni
    • Meðgöngukvillar, t.d. óþægindi í baki og grind, þreyta, svefntruflanir. Benda á viðeigandi bjargráð
  • Undirbúa vaxtarmat með ómskoðun við 36 vikur hjá konum með meðgöngusykursýki
  • Fara yfir niðurstöður ómunar í þeim tilvikum þar sem fylgja var lágsæt eða fyrirsæt í 20 vikna ómun
  • Fara yfir niðurstöður úr vaxtarmati hjá konum með BMI ≥ 40
  • Kynna eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu
  • Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu
  • Endurmeta áætlun í meðgönguvernd

Efni á öðrum tungumálum

Meðganga - meðgönguvernd

Upplýsingar á Heilsuveru um meðgönguvernd, skoðanir og skimanir á ensku: Maternal healthcare | Heilsuvera og pólsku: Opieka położnicza | Heilsuvera

Upplýsingar um meðgöngu á ýmsum tungumálum: https://www.ulh.nhs.uk/pregnancy-information-in-other-languages/

Upplýsingar um skimanir á meðgöngu á ymsum tungumálum: Screening tests for you and your baby (STFYAYB) - GOV.UK

Hvert skal leita ef upp koma vandamál á meðgöngu?: enska -pólska

Matur og meðganga: albanska arabíska -enska -pólska -rússneska -spænska -taílenska

Reykingar og meðganga: albanska - arabíska - enska - pólska - rússneska - taílenska

Áfengi og vímuefni og meðganga: albanska - arabíska - enska - pólska - rússneska - spænska - taílenska

Ýmislegt tengt meðgöngu eins og ofþyngd á meðgöngu, háþrýstingur/meðgöngueitrun, PROM, ofl:
Translation patient information | RCOG

Meðgöngusykursýki: arabíska -enska -franska -portúgalska -pólska -rúmenska -spænska -úkraínska - urdu

Samfélagið - réttindi og skyldur 

Innflytjendur á Íslandi: Réttur þinn    Að flytja til Íslands og að búa á Íslandi. Forsíða - Fjölmenningarsetur (mcc.is)