Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.
- Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
- Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
- Athuga fósturstöðu. Gera viðeigandi ráðstafanir ef þörf er á og veita viðeigandi upplýsingar
- Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
- Ræða væntanlega fæðingu með áherslu á að hver fæðing sé einstök
- Fyrstu merki um að fæðing sé að byrja
- Fyrirvaraverkir - aðdragandi fæðingar
- Fæðingarhríðir
- Eigin bjargráð og styrkleikar
- Stuðningur í fæðingu
- Mögulega fæðingarhjálp
- Verklag fæðingarstaða þegar fæðing er afstaðin
- Fyrsta brjóstagjöfin
- Sængurlega - heimaþjónusta ljósmæðra
- Fara yfir niðurstöður úr vaxtarmati ef það á við hjá þeim konum sem eru 40 ára og eldri
- Fara yfir niðurstöður úr vaxtarmati hjá konum með BMI ≥ 40
- Fara yfir áætlun eftir viðtal við fæðingarlækni hjá konum með
BMI ≥ 35 - Kynna möguleika á samtali eftir fæðingu
- Bjóða eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu hafi það ekki þegar verið gert
- Meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni
- Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu
- Endurmeta áætlun í meðgönguvernd