Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.
- Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
- Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
- Athuga fósturstöðu og gefa viðeigandi upplýsingar
- Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
- Kynna möguleika á samtali eftir fæðingu hafi það ekki þegar verið gert
- Bjóða eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu hafi það ekki þegar verið gert
- Bjóða framköllun fæðingar við 40-41 viku og viðeigandi upplýsingar hjá
- konum með GDMA,
- konum sem eru með BMI ≥ 35
- konum sem eru 40 ára og eldri
- Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu
- Endurmeta áætlun í meðgönguvernd