Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.
Upplýsingar - skoðun
- Afla upplýsinga um áfallasögu og ofbeldi, hafi það ekki þegar verið gert. Bregðast við samkvæmt klínískum leiðbeiningum um ofbeldi
- Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
- Ræða líkamlegar breytingar á meðgöngu og hvers má vænta næstu vikur, t.d. tíðari þvaglát, tog á legböndum, samdrætti, útferð og kláða
- Ræða tilfinningalegar breytingar, stuðning í parsambandi sem og annan stuðning
- Ræða fósturhreyfingar, fyrstu merki og hvers má vænta næstu vikur
- Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu (næring, hreyfing, svefn og hvíld)
Skimanir - Fara yfir, ræða og skrá niðurstöður allra skimana sem hafa verið framkvæmdar og bregðast við eftir þörfum
- Fara yfir svör við skimunarlistum fyrir þunglyndi og kvíða. Bregðast við niðurstöðum samkvæmt vinnulagi við meðferð þunglyndis og kvíða
- Ræða/undirbúa fósturskimun við 20 vikur
- Undirbúa skimun fyrir rauðkornamótefnum hjá Rhesus D neikvæðum konum og greiningu á Rhesus D flokki fósturs hjá þeim konum sem koma næst í 28 vikna skoðun
- Undirbúa skimun fyrir GDM hjá konum sem eru 35 ára-39 ára og ekki þurft skimun fyrir GDM fyrr á meðgöngunni
- Undirbúa seinni hluta skimunar fyrir GDM ef það á við
Fræðsla - Gefa tækifæri til umræðna og spurninga, meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni, t.d.:
- Meðgöngukvillar, t.d. ógleði, hægðatregða og kláði. Benda á viðeigandi bjargráð og hvenær beri að leita frekari ráða
- Val á fæðingarstað
- Skipulögð fræðsla og námskeið sem eru í boði um undirbúning fæðingar, brjóstagjöf, slysavarnir o.fl.
- Benda á Fæðingarparís, andlegan, líkamlegan og tilfinningalegan undirbúning fyrir fæðingu
- Endurmeta áætlun í meðgönguvernd
_______________________________