Tólf mánaða skoðun

 

Markmið: 

Greina frávik í heilsu og þroska barns við 12 mánaða aldur og veita foreldrum fræðslu og stuðning.

 

Fyrirkomulag:

Hjúkrunarfræðingur. Áætlaður tími í skoðun er 40 mínútur. 

 

Verkþættir:

    A. Upplýsingasöfnun, fræðsla og ráðgjöf

    B. Þroskamat

    C. Líkamsskoðun

    D. Bólusetning

    E. Eftirfylgd kvenna með vanlíðan eftir fæðingu

    F. Skráning

 

Árangursviðmið:

  • PEDS lagt fyrir 90% foreldra 12 mánaða barna

Hafa í huga

Athuga rauð flögg vegna einhverfurófs:

  • Ekkert babl til staðar
  • Engar bendingar/annað látbragð til staðar
  • Afturför í þroska
  • Systkini/foreldri með einhverfurófsröskun

Ef eitthvert þeirra atriða er til staðar ber að vísa barni í frumgreiningu nema allt annað mæli gegn því.

Vera vakandi fyrir líðan foreldra, fíkniefna- og áfengisneyslu, vanrækslu og ofbeldi.

Fræðsla

Meta þarf út frá aðstæðum hverju sinni hvaða stuðning og fræðslu foreldrar þurfa á að halda.

Áhersla er lögð á:

  • Næringu
  • Lýsi eða D-vítamín
  • Þroska og málörvun barns
  • Svefn barns
  • Tannhirðu barns
  • Slysavarnir

Bendið foreldrum á að skrá barn hjá heimilistannlækni í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands

Gert er mat á þroska og skimað fyrir þroskafrávikum með PEDS og þroskamati.

  • Áður en foreldrar fá PEDS-matsblað foreldra í hendur skal greina þeim frá því að athugun á hegðun og þroska sé mikilvægur þáttur í veittri þjónustu á heilsugæslustöðvum. Spyrja þarf hvort foreldrar vilji fylla blaðið út sjálfir eða hvort þeir vilji að einhver fari með þeim í gegnum spurningarnar.
  • Gert er mat á þroska og skimað fyrir þroskafrávikum. Almennt má framkvæma þroskamatið með þremur mismunandi aðferðum: beinni athugun, óbeinni athugun og/eða upplýsingum foreldra. 
  • Athugið hvort athugasemd hefur verið gerð áður um þroska barns sem þarf að fylgja eftir. Endurtakið atriði úr fyrra þroskamati sem voru óeðlileg og metið útkomu í samhengi við 12 mánaða þroskamat.
 

Þroskamat 12 mánaða:

Mæla þyngd, lengd og höfuðummál.

Almenn skoðun – sjá leiðbeiningar um líkamsskoðun barna.

Athugið hvort skán er á framtönnum í efri gómi. Eru tennur barns burstaðar með flúortannkremi tvisvar sinnum á dag? 

Afhendið foreldrum tannbursta ef tennur barns eru illa hirtar og skán situr á framtönnum efri góms. Fylgist með og leiðbeinið þegar foreldri burstar tennur barnsins.

Fylgja þarf eftir konum sem skimast með vanlíðan á meðgöngu og eftir fæðingu skv. flæðiriti

Vinnulag við skimun og meðferð þunglyndis og kvíða í ung- og smábarnavernd

Hér má finna EPDS og GAD-7 á ýmsum tungumálum