28 vikur

Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.

           Upplýsingar og skoðun

  • Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
  • Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
  • Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
  • Ræða breytingar á meðgöngu og hvers má vænta næstu vikur
  • Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu (næring, hreyfing, svefn og hvíld)
  • Ræða eftirfarandi þegar við á:
    • Þróun tengslamyndunar
    • Parsamband, væntingar, kynlíf, andlega líðan, aðlögun að foreldrahlutverkinu
    • Brjóstagjöf, óskir, væntingar og undirbúning
    • Fæðinguna, óskir, væntingar og undirbúning
    • Val á fæðingarstað
    •  Fæðingarorlof
    Skimanir
  • Fara yfir, ræða og skrá niðurstöður þeirra skimana og rannsókna sem hafa verið framkvæmdar og bregðast við eftir þörfum
  • Bjóða skimun f yrir blóðleysi og/eða járnskorti
    Vaxtarmat með ómskoðun
  • Fara yfir og ræða niðurstöður síðasta vaxtarmats/ómskoðunar hjá þeim konum sem ganga með tvíbura DC/DA
    Bólusetningar
  • Bjóða bólusetningu gegn  kíghósta
  • Bjóða Rhesus D neikvæðum konum sem ganga með Rhesus D jákvætt fóstur, Rophylac® mótefnasprautu
    Mat á áhættuþáttum
  • Fara yfir áhættuþætti og meta þörf á fyrirbyggjandi blóðsegameðferð
    Fræðsla
  • Meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni
    •  Meðgöngukvillar, t.d. samdrættir, tog á legböndum,
       brjóstsviði, bjúgur. Benda á viðeigandi bjargráð  
    Áætlun
  • Endurmeta áætlun í meðgönguvernd  

        _______________________________ 

Efni á öðrum tungumálum

Meðganga - meðgönguvernd
Upplýsingar á Heilsuveru um meðgönguvernd, skoðanir og skimanir á ensku: Maternal healthcare | Heilsuvera og pólsku: Opieka położnicza | Heilsuvera
Upplýsingar um meðgöngu á ýmsum tungumálum: https://www.ulh.nhs.uk/pregnancy-information-in-other-languages/
Upplýsingar um skimanir á meðgöngu á ýmsum tungumálum: Screening tests for you and your baby (STFYAYB) - GOV.UK
Upplýsingar um tvíburameðgöngu: Pregnant with twins - NHS  Patient education: Having twins (The Basics) - UpToDate Att vara gravid med tvillingar - 1177        
Hvert skal leita ef upp koma vandamál á meðgöngu?: enska -pólska
Matur og meðganga: albanska - arabíska -enska -pólska -rússneska -spænska -taílenska
Reykingar og meðganga: albanska - arabíska - enska - pólska - rússneska - taílenska
Áfengi og vímuefni og meðganga: albanska - arabíska - enska - pólska - rússneska - spænska - taílenska
Ýmislegt tengt meðgöngu eins og ofþyngd á meðgöngu, háþrýstingur/meðgöngueitrun, PROM, o.fl.:
Translation patient information | RCOG
Meðgöngusykursýki: arabíska -enska -franska -portúgalska-pólska -rúmenska -spænska -úkraínska urdu

Samfélagið - réttindi og skyldur 
Innflytjendur á Íslandi: Réttur þinn    Að flytja til Íslands og að búa á Íslandi. Forsíða - Fjölmenningarsetur (mcc.is)