EPDS
Nota skal EPDS til að skima fyrir þunglyndi og GAD-7 til að skima fyrir kvíða. Sjá flæðirit.
Skor á GAD-7:
- kvíðaeinkenni innan eðlilegra marka (0-4 stig)
- væg kvíðaeinkenni (5-9 stig)
- miðlungs kvíðaeinkenni (10-14 stig)
- mikil kvíðaeinkenni (15-21 stig)
Fylgja þarf konum eftir sem skora yfir 9 stig á EPDS skv. flæðiriti.
Ef grunur er um alvarlegri vanda, til dæmis:
- Ef já við spurningu 10 á EPDS um sjálfsskaða
- 12 stig eða meira á EPDS
- 15 stig eða meira á GAD-7
þá skal hafa samráð við heilsugæslulækni og sálfræðing á stöð fyrir ítarlegra mat á vanda og meðferðarþörf. Ef um alvarlegan geðheilbrigðisvanda er að ræða þá skal í samráði við lækna vísa til sérhæfðar geðheilbrigðisþjónustu.