25 vikur

Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.

          Upplýsingar og skoðun

  • Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
  • Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
  • Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
  • Ræða breytingar á meðgöngu og hvers má vænta næstu vikur, t.d. samdrætti, eðli þeirra styrk og hvenær beri að leita ráða
  • Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu (næring, hreyfing, svefn og hvíld)
  • Ræða eftirfarandi þegar við á:
    • Þróun tengslamyndunar
    • Parsamband, væntingar, kynlíf, andlega líðan, aðlögun að foreldrahlutverkinu
    • Brjóstagjöf, óskir, væntingar og undirbúning
    • Val á fæðingarstað
    • Skipulögð fræðsla og námskeið sem eru í boði um undirbúning fæðingar, brjóstagjöf, slysavarnir o.fl.
    Skimanir
  • Undirbúa skimun fyrir rauðkornamótefnum hjá Rhesus D neikvæðum konum og greiningu á Rhesus D flokki fósturs/fóstra 
  • Undirbúa skimun fyrir GDM hjá konum sem eru 35 ára-39 ára og ekki þurft skimun fyrir GDM fyrr á meðgöngunni, hafi það ekki þegar verið gert
  • Undirbúa seinni hluta skimunar fyrir GDM ef það á við
  • Fara yfir skimun fyrir blóðleysi og/eða járnskorti hjá konum sem ganga með tvíbura, ef það á við
  • Fara yfir og ræða niðurstöður úr 19-20 vikna fósturskimun hafi það ekki þegar verið gert
    Ómskoðun - vaxtarmat
  • Undirbúa þær konur sem ganga með tvíbura DC/DA fyrir vaxtarmat með ómskoðun til viðbótar við mælingu á legbotnshæð
    Fræðsla
  • Meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni
    • Meðgöngukvillar, t.d. óþægindi í baki, grind og nára, fótapirringur/krampar, svefntruflanir og skapsveiflur. Benda á viðeigandi bjargráð
    Áætlun
  • Endurmeta áætlun í meðgönguvernd

        _______________________________ 

Setja í  fókus að ræða fósturhreyfingar, þróun tengslamyndunar, parsambandið og brjóstagjöf.

Efni á öðrum tungumálum

Meðganga - meðgönguvernd
Upplýsingar á Heilsuveru um meðgönguvernd, skoðanir og skimanir á ensku: Maternal healthcare | Heilsuvera og pólsku: Opieka położnicza | Heilsuvera
Upplýsingar um meðgöngu á ýmsum tungumálum: https://www.ulh.nhs.uk/pregnancy-information-in-other-languages/
Upplýsingar um skimanir á meðgöngu á ýmsum tungumálum: Screening tests for you and your baby (STFYAYB) - GOV.UK
Upplýsingar um tvíburameðgöngu: Pregnant with twins - NHS  Patient education: Having twins (The Basics) - UpToDate Att vara gravid med tvillingar - 1177        
Hvert skal leita ef upp koma vandamál á meðgöngu?: enska -pólska
Matur og meðganga: albanska - arabíska -enska -pólska -rússneska -spænska -taílenska
Reykingar og meðganga: albanska - arabíska - enska - pólska - rússneska - taílenska
Áfengi og vímuefni og meðganga: albanska - arabíska - enska - pólska - rússneska - spænska - taílenska
Ýmislegt tengt meðgöngu eins og ofþyngd á meðgöngu, háþrýstingur/meðgöngueitrun, PROM, o.fl.:
Translation patient information | RCOG
Meðgöngusykursýki: arabíska -enska -franska -portúgalska-pólska -rúmenska -spænska -úkraínska urdu

Samfélagið - réttindi og skyldur 
Innflytjendur á Íslandi: Réttur þinn    Að flytja til Íslands og að búa á Íslandi. Forsíða - Fjölmenningarsetur (mcc.is)