Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.
Upplýsingar - skoðun
- Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
- Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
- Ræða breytingar á meðgöngu og hvers má vænta næstu vikur
- Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta næstu vikur og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
- Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu (næring, hreyfing, svefn og hvíld)
- Ræða eftirfarandi þegar við á:
- Þróun tengslamyndunar
- Parsamband, væntingar, kynlíf, andlega líðan, aðlögun að foreldrahlutverkinu
- Brjóstagjöf, óskir, væntingar og undirbúning
- Fæðinguna, óskir, væntingar og undirbúning
- Val á fæðingarstað
- Fara yfir, ræða og skrá niðurstöður allra skimana/rannsókna sem gerðar voru við 28 vikna meðgöngu og bregðast við eftir þörfum
Vaxtarmat með ómskoðun - Meta þörf á vaxtarmati með ómskoðun hjá konum sem eru með BMI ≥ 35-39.9
- Meta þörf á vaxtarmati með ómskoðun hjá þeim konum sem eru 40 ára og eldri
- Undirbúa vaxtarmat með ómskoðun við 32 v og 36 v hjá konum sem eru með BMI≥ 40
- Fara yfir og ræða niðurstöður síðasta vaxtarmats/ómskoðunar hjá þeim konum sem ganga með tvíbura DC/DA
Viðtal við fæðingarlækni - Undirbúa viðtal við fæðingarlækni við 36 vikur hjá konum með BMI≥ 40
Fræðsla - Meta fræðsluþarfir og benda á viðeigandi fræðsluefni
- Meðgöngukvillar, t.d. óþægindi í baki og grind, þreyta, svefntruflanir. Benda á viðeigandi bjargráð
- Endurmeta áætlun í meðgönguvernd
_______________________________