- Einstaklingum með sykursýki 2
- Einstaklingum með hækkaðan fastandi blóðsykur eða HbA1c
- Konum sem hafa fengið sykursýki á meðgöngu (ráðlagt eftirlit 3-5 ár eftir fæðingu)
Móttakan er ætluð:
- Skjólstæðingar móttökunnar séu vel upplýstir og virkir þáttakendur í sinni meðferð og geti tekið upplýstar ákvarðanir um meðferð á eigin sjúkdómi í samráði við aðra meðferðaraðila.
- Auka lífsgæði þessarra skjólstæðinga bæði til skemmri (einkenni hás blóðsykurs) og lengri tíma (fylgikvilla), með jákvæðum áhrifum á blóðsykur og aðra áhættuþætti svo sem háþrýsting, háar blóðfitur og reykingar.
- Teymisvinna læknis, hjúkrunarfræðings og hreyfistjóra – aðkoma annarra fagaðila eftir því sem þurfa þykir
- Hjúkrunarfræðingur heldur utan um sjúklingahóp og boðar í eftirlit samkvæmt skema
- Nota skal sniðmát um sykursýkismóttöku og samskiptaseðil sykursýki í sögu
- Teymisfundir hjúkrunarfræðings, hreyfistjóra (þegar við á), læknis og eftir þörfum innkirtlalækna og næringarfræðinga. Skipulag teymisfunda eftir þörfum hverrar starfstöðvar.
- Stuðst er við klínískar leiðbeiningar ADA og EASD varðandi sykurstjórnun og NICE varðandi meðhöndlun á háþrýsting og blóðfitur.
Um verkefnið
Vinnuhópur á vegum Þróunarsviðs heilsugæslunnar vann þessar leiðbeiningar árið 2016 og eru þær hugsaðar sem hagnýt aðstoð við að sinna skjólstæðingum með áunna sykursýki á sem bestan hátt hverju sinni.
Leiðbeiningarnar voru uppfærðar haustið 2019 og ákveðið að styðjast við Klínískar leiðbeiningar ADA og EASD varðandi blóðsykurstjórnun og NICE varðandi meðhöndlun háþrýsting og blóðfitur
Vinnuhópurinn 2016
- Þróunarsvið heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins:
- Anna Sigríður Sigmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Hvammi
- Ása Sjöfn Lórensdóttir, hjúkrunarfræðingur, Garðabæ
- Einar Þórarinsson, heimilislæknir, Seltjarnarnesi
- Emil Sigurðsson, yfirlæknir þróunarsviðs og prófessor í heimilislækningum
- Hörður Björnsson, heimilislæknir, Hvammi
- Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, sviðstjóri þróunarsviði heilsugæslunnar
- Unnur Þóra Högnadóttir, heimilislæknir, Sólvangi
- Þórunn Anna Karlsdóttir, heimilislæknir, Efra-Breiðholti
Vinnuhópur við endurskoðun leiðbeininga 2019
- Ása Sjöfn Lórensdóttir, hjúkrunarfræðingur, fagstjóri heilsuverndar skólabarna, ÞÍH
- Hörður Björnsson, svæðisstjóri og fagstjóri lækninga, Miðbæ
- Unnur Þóra Högnadóttir, heimilislæknir, Sólvangi
- Auður Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari ÞÍH
- Anna Sigríður Sigmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Hvammi
- Hafdís Lilja Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
- Rut Gunnarsdóttir, svæðisstjóri og fagstjóri hjúkrunar, Hvammi
- Óla Kallý Magnúsdóttir, næringarfræðingur PhD, Landspítali Háskólasjúkrahús
Ráðleggingar um mataræði: íslenska, enska, pólska
Næringarmeðferð - leiðbeiningar
Eldri einstaklingar með sykursýki
Sjónukvilli - Snemmgreining og eftirlit
Langvinnur nýrnasjúkdómur (CKD)
Sænskar ráðleggingar um hreyfingu fólks með sykursýki2
Ókeypis app fyrir fólk með sykursýki (RetinaRisk)
