Meta þörf á þjónustu, stuðningi og gera áætlun þar um. Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á. Áhersla í viðtalinu ætti að taka mið af þörfum og óskum konunnar og gefa ætti tækifæri til umræðna og spurninga.
Upplýsingar - skoðun
- Mæla blóðþrýsting og athuga eggjahvítu í þvagi
- Mæla legbotnshæð og skrá á legvaxtarrit
- Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu (næring, hreyfing, svefn og hvíld)
- Athuga fósturstöðu
- Ræða fósturhreyfingar og hvers má vænta og hvert skal leita ef ekki finnast hreyfingar
- Ræða um lengda meðgöngu og bjóða framköllun fæðingar og viðeigandi upplýsingar
Framköllun fæðingar - Bjóða belgjalosun ef ákvörðun um framköllun fæðingar liggur fyrir
Eftirfylgd eftir fæðingu - Kynna möguleika á samtali eftir fæðingu hafi það ekki þegar verið gert
- Kynna eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu hafi það ekki þegar verið gert
Fræðsla - Gefa tækifæri til umræðna og spurninga og benda á viðeigandi fræðsluefni:
- Minna á Fæðingarparís, andlegan, líkamlegan og tilfinningalegan undirbúning fyrir fæðingu
- Fæðingin
- Fyrstu dagarnir eftir fæðingu
____________________________________________________