Þriggja mánaða skoðun

 Markmið: 

Greina frávik í heilsu og þroska barns við 3 mánaða aldur og veita foreldrum fræðslu og stuðning.

 

Fyrirkomulag:

Hjúkrunarfræðingur og læknir. Mælt með að barnalæknir komi að skoðuninni sé hann til staðar. Skoðunin fer fram á heilsugæslustöð. Áætlaður tími í skoðun er 20 mínútur. 

 

Verkþættir:

    A. Upplýsingasöfnun, fræðsla og ráðgjöf

    B. Þroskamat

    C. Líkamsskoðun

    D. Bólusetning

    E. Eftirfylgd kvenna með vanlíðan eftir fæðingu

    F. Skráning

Hafa í huga

Byrja á að spyrja foreldra hvort það sé eitthvað sérstakt sem þeir vilja spyrja um í dag og hvort þeir hafi einhverjar áhyggjur af barni sínu.

Skoða sjúkraskrá barns og athuga hvort athugasemdir hafi verið gerðar sem þurfi að skoða betur.

Vera vakandi fyrir líðan foreldra, fíkniefna- og áfengisneyslu, vanrækslu og ofbeldi.

Fræðsla

Meta þarf út frá aðstæðum hverju sinni hvaða stuðning og fræðslu foreldrar þurfa á að halda. Notið eftirfarandi leiðbeiningar og ráðleggingar þegar við á.

Áhersla skal lögð á:

  • Stuðning við brjóstagjöf/næringu
  • D-vítamíndropa (10 μg/dag) 
  • Lesa í tjáningu barns
  • Þroska og örvun barns
  • Svefn barns
  • Umönnun og hreinlæti

Gert er mat á þroska og skimað fyrir þroskafrávikum. Almennt má framkvæma þroskamatið með þremur mismunandi aðferðum: beinni athugun, óbeinni athugun og/eða upplýsingum foreldra.

Athugið hvort athugasemd hefur verið gerð áður um þroska barns sem þarf að fylgja eftir. Endurtakið atriði úr fyrra þroskamati sem voru óeðlileg og metið útkomu í samhengi við  3 mánaða þroskamat.

Þroskamat 3 mánaða:

Mæla þyngd, lengd og höfuðummál.

Almenn skoðun – sjá leiðbeiningar um líkamsskoðun barna

Athugið tonus með því að rétta úr í olnbogum, mjöðmum, hnjám og fótliðum. Veruleg hypo- eða hypertoni? Greinilegur munur hægra og vinstra megin? Samhæfð hreyfing útlima?

Ef annar eða báðir hnefar eru stöðugt krepptir þarf að athuga það nánar.

Fylgja þarf eftir konum sem skimast með vanlíðan á meðgöngu og eftir fæðingu skv. flæðiriti

Vinnulag við skimun og meðferð þunglyndis og kvíða í ung- og smábarnavernd

Hér má finna EPDS og GAD-7 á ýmsum tungumálum