Fjögurra ára skoðun

Markmið: 

Greina frávik í heilsu og þroska barns við 4 ára aldur og veita foreldrum fræðslu og stuðning.

 

Fyrirkomulag:

Hjúkrunarfræðingur

 

Verkþættir:

    A. Upplýsingasöfnun, fræðsla og ráðgjöf

    B. Þroskamat

    C. Líkamsskoðun

    D. Bólusetning

    E. Sjónpróf

    F. Skráning

 

Árangursviðmið:

  • >90% 4 ára barna með heimilistannlækni
  • PEDS lagt fyrir 90% foreldra 4 ára barna

Hafa í huga

Eru einhver vandamál sem þarf að fylgja eftir? 

Er barn fullbólusett?

Yfirfara sjúkragögn og huga að rauðum flöggum sem þarf að fylgja eftir áður en barn hættir í ung- og smábarnavernd.

Er barnið með skráðan heimilislækni í Sögu?

Vísa foreldrum sem ekki hafa farið með barnið í tannskoðun til heimilistannlæknis.

Fræðsla

Meta þarf út frá aðstæðum hverju sinni hvaða stuðning og fræðslu foreldrar þurfa á að halda.

Áhersla er lögð á:

  • Næringu
  • Lýsi
  • Þroska, hreyfingu og málörvun barns
  • Uppeldi, hegðun og aga, sjónvarpsáhorf
  • Fræðsluefnið „Líkaminn minn fyrir 0-6 áraBókin er einn liður í forvörnum og fræðslu Barnaheilla um vernd barna gegn kynferðislegu ofbeldi. 
  • Tannhirðu barns
  • Slysavarnir

Heilsan mín:

Farsæld barna

  • Við 4 ára skoðun er PEDS matsblað lagt fyrir foreldra og Brigance þroskaskimun lögð fyrir í völdum tilfellum.
  • PEDS matsblað er kynnt fyrir foreldrum.
  • Fylgið leiðbeiningum á PEDS túlkunarblaði og notið klínískt mat við túlkun niðurstaðna.
  • Brigance þroskaskimun er lögð fyrir:
    • Börn sem eru ekki í leikskóla
    • Ef áhyggjur koma fram á PEDS
    • Ef frávik koma fram í fyrri skoðunum eða þroskamati í ung- og smábarnavernd
    • Ef fagaðili hefur áhyggjur af þroska barns
  • Notast er við Brigance skemmri skimun, en einnig má nota Brigance lengri skimun til að fá nánari mynd af þroskastöðu barns.
  • Metið útkomu þroskamats og fylgið ráðleggingum. Ef frávik greinast er mikilvægt að bregðast við og/eða vísa í viðeigandi úrræði.

Mæla þyngd og lengd. Þegar frávik mælast er mikilvægt að hafa í huga mæliskekkjur. Endurteknar mælingar eru því mikilvægar þegar grunur vaknar um frávik á vaxtarlínuriti. Sjá nánar um vöxt barna.

Leiðbeiningar fyrir heilsugæslu um offitu hjá börnum og unglingum

Almenn skoðun – sjá leiðbeiningar um líkamsskoðun barna.

Tilvísun til tannlæknis ef barn er ekki með skráðan heimilistannlækni. 

Sjónpróf gert og athugað hvort eðlileg samsjón sé til staðar.

4 ára börn eiga að sjá 0,8 (6/7,5) með hvoru auga um sig. Ef barn nær ekki þessari sjón eða ef munar meira en einni línu á sjón hægra og vinstra auga þarf að vísa því til augnlæknis.

Senda þarf öll börn til augnlæknis sem ekki hafa eðlilega samsjón.