ATH. NÝTT VERKLAG (apríl 2023) - Félagsráðgjafar og sálfræðingur hafa verið ráðnir hjá LSH til að sjá um þjónustu sem er bæði til ráðgjafar fyrir fagfólk. Einnig er hægt að gera tilvísun til þeirra fyrir þolendur heimilisofbeldis
Markmið efnisins er vitundarvakning; fræðsla og hvatning til að ræða um heimilisofbeldi.
Menntadeild Landspítala og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu standa saman að fræðslu um heimilisofbeldi, einkenni og úrræði sem hægt er að nálgast hér að neðan.
Fræðsluefninu er ætlað að veita almennar upplýsingar til starfsmanna heilbrigðisstofnana um heimilisofbeldi til að stuðla að vitundarvakningu og aukinni umræðu. Við erfiðar aðstæður í samfélaginu eykst heimilisofbeldi. Starfsmenn í heilbrigðiskerfinu geta verið í lykilstöðu að koma auga á einkenni og benda þolendum á úrræði.
Myndband - Áhrif heimilisofbeldis á börn
Languages - link on domestic violence
Einnig viljum við benda á nýju síðuna eittlif.is þar sem er úrræðaleitarvél hægt er að leita til þegar vandasöm mál bera að garði sem varða og/eða tengjast geðheilbrigði, fíkn, ofbeldi, kynheilbrigði, félagsmálum eða fráfalli ástvinar.
Einnig er boðið upp á námskeið fyrir fagfólk sem er um mat og fyrstu viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum. Lesa má nánar um það hér.