Grænkerafæði (vegan mataræði) byggir eingöngu á mat úr jurtaríkinu og sneytt er hjá öllum mat úr dýraríkinu (kjöt, fiskur, egg, mjólkurvörur og hunang).

 

Almennt er auðveldara að viðhalda góðu næringarástandi ef fjölbreytni er í fæðuvali. Því fleiri matvæli og fæðuflokkar sem eru útilokuð þeim mun meira þarf að vanda fæðuval svo að maturinn, ásamt réttum bætiefnum, uppfylli þörf fyrir bæði orku og næringarefni. Til þess að fá öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast úr grænkerafæði ætti meðal annars að velja matvæli úr eftirtöldum fæðuflokkum á hverju degi:

Belgjurtir, til dæmis baunir, ertur og linsur, tófú og aðrar sojavörur

Heilkornavörur, til dæmis hafra, bygg, hýðishrísgrjón, kínóa, hirsi, heilkornabrauð og heilkornapasta

Grænmeti

Ávexti og ber

Hnetur og fræ

Drykkjarvörur eins og vítamín- og steinefnabætta jurtamjólk, til dæmis soja- og haframjólk. Vatn er besti svaladrykkurinn

Jurtaolíur, til dæmis repjuolíu, ólífuolíu, hnetuolíu

Takmarka ætti mikið unnar vörur sem innihalda mikið af mettaðri fitu, salti og/eða sykri

Bætiefni sem allir þeir sem fylgja grænkerafæði ættu að taka eru D-vítamín og B12-vítamín. Ráðleggingar um önnur bætiefni fara eftir fæðuvali, aldri, ástandi og þörfum hvers og eins.

 

Íslenskar ráðleggingar um grænkerafæði á meðgöngu og við brjóstagjöf:
Samantekt - Grænkerafæði (vegan mataræði) á meðgöngu og við brjóstagjöf
Ítarlegri texti - Grænkerafæði (vegan mataræði) á meðgöngu og við brjóstagjöf

Íslenskrar ráðleggingar um grænkerafæði fyrir börn frá fæðingu að 6 ára aldri
Samantekt - Grænkerafæði (vegan mataræði) fyrir börn frá fæðingu að 6 ára aldri
Ítarlegri texti - Grænkerafæði (vegan mataræði) fyrir börn frá fæðingu að 6 ára aldri