Endurskoðun á Brigance þroskaskimun

Mynd af frétt Endurskoðun á Brigance þroskaskimun
15.05.2025

Leiðbeiningar um þroskamat í 2 1/2 og 4 ára skoðuninni hafa verið endurskoðaðar í Leiðbeiningum um ung- og smábarnavernd. Brigance þroskaskimun hefur verið lögð fyrir öll börn við þennan aldur, en verður framvegis lögð fyrir í völdum tilfellum.

Brigance þroskaskimun verður nú lögð fyrir:

  • Börn sem eru ekki í leikskóla
  • Ef áhyggjur koma fram á PEDS
  • Ef frávik koma fram í fyrri skoðunum eða þroskamati í ung- og smábarnavernd
  • Ef fagaðili hefur áhyggjur af þroska barns

Sjá 2 1/2 árs skoðun og 4 ára skoðun