Fyrsta símtal í meðgönguvernd

Fyrstu samskiptin við ljósmóður í meðgönguvernd eru oftast með símtali. Taka ætti mið af þörfum konunnar og gefa tækifæri til umræðna og spurninga.  Upplýsa um og bjóða túlkaþjónustu þegar við á eða skrá í mæðraskrá það tungumál sem konan talar. 

Meta hvort þörf sé á annarri/meiri þjónustu en meðgönguvernd í heilsugæslu býður uppá. Vísa ætti þeim konum  sem ekki munu verða í meðgönguvernd í heilsugæslu, áfram í viðeigandi þjónustu eins fljótt og kostur er til þess m.a. að tryggja samfellu í meðgönguvernd.

          Upplýsingar 

  • Stofna mæðraskrá og skrá sem símtal
  • Spyrja um núverandi líðan og bregðast við eftir þörfum
  • Afla upplýsinga um áætlaða meðgöngulengd, fyrri meðgöngur og fæðingar.
  • Afla upplýsinga um almennt heilsufar og líðan, lyfjanotkun, áfengis - nikótíns/tóbaks og vímuefnanotkun/fíknisjúkdóma. Benda á úrræði eftir því sem við á.
  • Athuga sjúkdómsgreiningar frá fyrri meðgöngum og fæðingum 
  • Benda á upplýsingar um fósturskimanir á Heilsuveru.
  • Ræða mikilvægi þess að huga vel að eigin heilsu (næring, hreyfing, svefn og hvíld), ráðleggja fólat og D vítamín, benda á fæðutegundir sem ber að forðast.
  • Bóka tíma í fyrstu skoðun eða vísa í viðeigandi þjónustu.

Mælt er með sérhæfðri meðgönguvernd sem ljósmóðir og fæðingarlæknir/kvensjúkdómalæknir sjá um í eftirfarandi tilvikum. Þegar aðstæður/búseta kallar á samvinnu við sérhæfða meðgönguvernd ætti slík samvinna að hefjast sem fyrst:

  • Asthmi sem krefst líftæknilyfjameðferðar eða meira en innúðameðferðar 
  • Flogaveiki sem þarfnast lyfjameðferðar, nýlegt flog eða fengið flog á meðgöngu
  • Háþrýstingur sem krefst meira en tveggja lyfja meðferðar
  • HIV
  • Hjartasjúkdómur og þörf á reglulegu eftirliti hjá hartalækni
  • Sjálfsónæmissjúkdómar, ef virkur sjúkdómur eða á líftæknilyfjum 
  • Sykursýki af tegund 1 
  • Sykursýki af tegund 2
  • Regluleg vímuefnaneysla eða hætt neyslu og/eða fíknimeðferð undanfarið ár
  • Saga um:
    • Alvarlegan geðsjúkdóm t.d. sturlun eftir barnsburð (puerperal psychosis) 
    • Svæsna meðgöngueitrun fyrir 34 vikur, HELLP heilkenni eða eclampsiu

Mælt er með mati og ráðgjöf fæðingarlæknis um meðferð á meðgöngu:

  • Alvarlegur nýrnasjúkdómur og/eða þvagfærasjúkdómur 
  • Blæðingartilhneiging - blóðstorkusjúkdómar
  • BMI ≥50
  • Fyrsta meðganga eftir andvana fæðingu
  • Hepatitis B og C
  • Saga um:
    • Alvarlegan meðgönguháþrýsting