• Heilsugæslan
heilsuvera-logo
  • Svið ÞÍH
    • Svið ÞÍH - Yfirlit
    • Mæðravernd
    • Ung- og smábarnavernd
    • Heilsuvernd skólabarna
    • Lyfjasvið
    • Gæðaþróunarsvið
    • Sjúkraþjálfunarsvið
    • Næringarsvið
    • Sálfræðiþjónusta
    • Heilsueflandi þjónusta
    • Farsæld barna
  • Kennsla
    • Kennsla - Yfirlit
    • Sérnám í heimilislækningum
    • Sérnám í heilsugæsluhjúkrun
    • Sérnámsgrunnslæknar
    • Námskeið fyrir fagfólk
  • Leiðbeiningar
    • Leiðbeiningar - Yfirlit
    • Sykursýkismóttaka
    • Strama verkefnið
    • Lyfjaleiðbeiningar
    • Eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu
    • Heilsueftirlit fatlaðs fólks
    • Heimilisofbeldi - ofbeldi í nánum samböndum
    • Veikindi eftir Covid-19
    • Fræðsla um fötlun
    • Börn sem aðstandendur
    • Fjölskylduteymi
    • Væg til miðlungs einkenni kvíða, depurðar og áfallastreitu
    • Breytingaskeið kvenna
    • Geðheilbrigði aldraðra
    • Í öruggum höndum
    • ME sjúkdómurinn
    • Háþrýstingur
    • Offita hjá börnum og unglingum - leiðbeiningar fyrir heilsugæslu
    • Limlestingar á kynfærum stúlkubarna
  • Verkfæri
  • Um ÞÍH
    • Um ÞÍH - Yfirlit
    • Stjórnun og skipulag
    • Svið ÞÍH
    • Stefna
    • Ársskýrslur og tölfræði
    • Fréttasafn
    • Starfsfólk ÞÍH
    • ÞÍH tíðindi
    • Greinasafn ÞÍH
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
  • Svið ÞÍH
    • Svið ÞÍH

      • Mæðravernd
      • Ung- og smábarnavernd
      • Heilsuvernd skólabarna
      • Lyfjasvið
      • Gæðaþróunarsvið
      • Sjúkraþjálfunarsvið
      • Næringarsvið
      • Sálfræðiþjónusta
      • Heilsueflandi þjónusta
      • Farsæld barna
  • Kennsla
    • Kennsla

      • Sérnám í heimilislækningum
      • Sérnám í heilsugæsluhjúkrun
      • Sérnámsgrunnslæknar
      • Námskeið fyrir fagfólk
  • Leiðbeiningar
    • Leiðbeiningar

      • Sykursýkismóttaka
      • Strama verkefnið
      • Lyfjaleiðbeiningar
      • Eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu
      • Heilsueftirlit fatlaðs fólks
      • Heimilisofbeldi - ofbeldi í nánum samböndum
      • Veikindi eftir Covid-19
      • Fræðsla um fötlun
      • Börn sem aðstandendur
      • Fjölskylduteymi
      • Væg til miðlungs einkenni kvíða, depurðar og áfallastreitu
      • Breytingaskeið kvenna
      • Geðheilbrigði aldraðra
      • Í öruggum höndum
      • ME sjúkdómurinn
      • Háþrýstingur
      • Offita hjá börnum og unglingum - leiðbeiningar fyrir heilsugæslu
      • Limlestingar á kynfærum stúlkubarna
  • Verkfæri
    • Verkfæri

  • Um ÞÍH
    • Um ÞÍH

      • Stjórnun og skipulag
      • Svið ÞÍH
      • Stefna
      • Ársskýrslur og tölfræði
      • Fréttasafn
      • Starfsfólk ÞÍH
      • ÞÍH tíðindi
      • Greinasafn ÞÍH
ForsíðaSvið ÞÍHLyfjasviðLeiðbeiningar um lyfjavalMeltingarsjúkdómar

Meltingarsjúkdómar

  • Lyfjameðferð aldraðra
  • Beinþynning
  • Breytingaskeið kvenna
  • Geðsjúkdómar
  • Hjartabilun
  • Háþrýstingur
  • Sykursýki
  • Meltingarsjúkdómar
    • Sýkingar
    • Verkir

    Starfræn meltingarónot (non-ulcer dyspepsia)

    Starfræn meltingarónot eru algengasta orsök langvarandi meltingarónota. Greiningin er byggð á ROME IV viðmiðunum sem eru eftirfarandi:

    1. Minnst eitt af eftirfarandi einkennum:

        a. Óþægileg seddutilfinning eftir máltíðir

        b. Fljótt saddur/södd

        c. Verkur efst í miðjum kvið (epigastrii)

        d. Sviðatilfinning efst í miðjum kvið (epigastrii)

    2. Ekki merki um undirliggjandi sjúkdóm sem skýrir einkennin. 

    Meðferð

    Við vægum og meðalvægum óþægindum er mælt með því að borða minni skammta og borða hægar og oftar. Hreyfing og streitustjórnun er mikilvæg.

    Sumir sjúklingar með meltingarónot í efri hluta kviðarhols geta svarað PPI lyfjum, það er að segja geta haft magasýrutengd einkenni. Mjög mikilvægt er að meta áhrif af lyfjunum og yfirleitt er vika á meðferðinni nægileg meðferðarlengd til að meta hvort um er að ræða svörun við meðferðinni. Ef sjúklingurinn finnur ekki fyrir minnkandi einkennum eða ef ekki er um skýra svörun ætti að hætta PPI meðferð. 

    Forðast skal PPI lyf  til langframa hjá þeim sem ekki hafa skýra jákvæða svörun við meðferðinni og geta mögulega haft slæm áhrif við langtímanotkun. 

    Amitriptyline

    Ef verkir eru áberandi einkenni mætti reyna amitriptyline. Lyfið hefur virkni við verkjum í lágum skömmtum. Upphafsskammtur er 10 mg fyrir svefn sem má hækka um 10 mg á tíu daga fresti upp í 30-50 mg. Náist virkni ekki við 50 mg ætti ekki að hækka skammtinn meira.

    Meðferðarlengd er 6-12 mánuðir og eftir það á að trappa út lyfjameðferðina. Það tekur nokkrar vikur að ná fram fullum áhrifum lyfsins. Hafa skal í huga að andkólínvirkar aukaverkanir hjá eldri einstaklingum.

    Vélindabakflæði (Gerd)

    Dæmigerð einkenni bakflæðis eru brjóstsviði, nábítur, verkir um ofanverðan kvið, ógleði, minni matarlyst. 

    Ódæmigerð en algeng einkenni eru hósti, hæsi, astmaeinkenni, brjóstverkir, tannskemmdir, glerungseyðing. 

    Helstu áhættuþættir fyrir vélindabakflæði eru ættlægni, karlkyn, ofþyngd, reykingar, áfengisnotkun, slök vöðvaspenna tengt fötlun eða sjúkdómum. 

    Áður en lyfjameðferð hefst er ráðlagt að fara yfir helstu lífstílsþætti sem hafa áhrif á einkenni.

    Lyfjameðferð

    Við bakflæðiseinkennum sem ekki eru viðvarandi má nota lyf eins og Rennie og Gaviscon sem seld eru í lausasölu.

    Við dæmigerðum bakflæðiseinkennum er mælt með lyfjameðferð í 4-8 vikur. Stefna skal að einkennameðferð með lægsta mögulega skammti, eða eftir þörfum.

    Svari einstaklingur ekki lyfjameðferð skal endurskoða greininguna og íhuga magaspeglun. Forðast skal meðferð með sýruhemjandi lyfjum í að minnsta kosti viku fyrir magaspeglun.

    Huga skal að frekari uppvinnslu ef einkenni eru þrálát og svara illa meðferð, ef sjúklingur er að horast, er með kviðverki, blóðleysi og/eða svartar hægðir.

    1. omeprazole
    2. esomeprazole, rabeprazol eða lanzoprazole

    Prótónupumpuhemlar eru sambærileg lyf með tilliti til verkunar og öryggis. Omeprazole er vel rannsakað, aðgengilegt og hagstætt í verði.

     

    Maga- og skeifugarnasár

    Skeifugarnarsár og Helicobacter Pylori-jákvætt magasár

    Samsett meðferð með: 

    • Omeprazole 20 mg x 2
    • Amoxicillin 1 g x 2
    • Chlarithromycin 500 mg x 2

    7 daga þriggja lyfja meðferð, leiðir til 80-90% upprætingar á Helicobacter pylori. Eftir það er magasár meðhöndlað með omeprazol 20 mg x 1 þar til speglun staðfestir að sárið sé gróið. 

    Ef meðferð skilar ekki árangri eða um er að ræða penicillin ofnæmi

    • Omeprazole 20 mg x 2
    • Metronidazole 400 mg x 2
    • Chlaritromycin 500 mg x 2 

    í 7 daga. Eftir það er magasár meðhöndlað með omeprazole 20 mg x 1 þar til speglun staðfestir að sárið sé gróið.

    Helicobacter Pylori-neikvætt magasár

    Omeprazole þar til speglun staðfestir að sárið sé gróið 

    Fyrirbyggjandi meðferð við sárasjúkdómi

    Hjá sjúklingum með fyrri sögu um sár má íhuga fyrirbyggjandi meðferð með PPI við langtímameðferð með ASA eða NSAID. Meðferð með barksterum einum og sér er ekki ábending fyrir fyrirbyggjandi meðferð með PPI.

    Ógleði

    Metoclopramide

    Vel rannsakað ógleðilyf sem er bæði D2 viðtaka hemill og (í háum skömmtum) 5HT3-viðtaka hemill. Auk þess eykur metoclopramide hreyfingar í meltingarvegi (prokinetic). Hætta er á extrapyramidal aukaverkunum og mikilvægt að reyna að forðast langtímanotkun og reyna að nota lægsta skammt sem hefur virkni og ekki til langframa.

    Ógleði og uppköst hjá þunguðum konum

    Ógleði vegna mígrenis

    1. metoclopramide
    2. ondansetron

    Ógleði vegna ferðaveiki

    1. meclozine (Postafen)

    Notkun þessa lyfs við ferðaveiki er byggð á áratuga reynslu en hefur ekki verið rannsökuð.

     

    Niðurgangur

    Starfrænn niðurgangur, einkennameðferð:

    1. Loperamide 2-6 mg/sólarhring sem fyrirbyggjandi meðferð.

    Loperamide er vel rannsakað lyf við niðurgangi og má nota bæði við skammtíma sem og langvarandi niðurgangi. 

    Hægðatregða

    Mikilvægt að huga að trefjaríku fæði og reglubundinni hreyfingu

    Lífstílsbreytingar:

    • Aukin vökvaneysla
    • Aukin trefjaneysla
    • Hreyfing

    Vandinn er stundum of- eða vanmetinn og oftar en ekki gripið í hægðalyfin áður en önnur úrræði eru reynd. 

    Öll hægðalyf eiga það sameiginlegt að nauðsynlegt er að drekka vel af vökva þegar þau eru notuð.

    Fullorðnir 

    1.  Rúmmálsaukandi lyf – soga í sig vökva og eykur hægðamagn í ristli. Trefjarnar draga til sín vatn og þenjast út og auka þar með þarmahreyfingarnar.
      • Psyllium/HUSK. Hægt að nota til lengri tíma án vandkvæða.

      eða 
      Hægðalyf með osmótíska verkun – lyfið veldur auknu vökvastreymi til ristilsins.

      • Lactulosum  Medilax/Sorbitol). Hægt að nota til lengri tíma án vandkvæða.
      • Magnesium (Magnesium medic). Hægt að nota til lengri tíma án vandkvæða. Frábending ef um alvarlega nýrnabilun er að ræða eða hjartasjúkdóm Macrogolum í blöndu (Movicol). Venjulega varir meðferð ekki lengur en 2 vikur, en ef nauðsyn krefur má endurtaka hana.

    2. Lyf með áhrif á hreyfingu þarma
      • Linaclotide (Constella) - er notað til meðferðar við einkennum miðlungs til svæsinnar iðraólgu (oft kallað ristilkrampar) með hægðatregðu hjá fullorðnum sjúklingum. Ef enginn bati skal endurmeta gagnsemi eftir 4 vikur.

    3. Viðbótarmeðferð eftir þörfum - til skammtímanotkunar
      • Natrii lauryl sulfoacetas í blöndu (Microlax) -  virkar neðst í endaþarminum og mýkir hægðirnar og flýtir losun. Ekki langtímameðferð.
      • Picosulfate natrium (Laxoberal dropar)- hvetur þarmahreyfingar og eykur upptöku vatns og salta í ristlinum, örvar þarmatæmingu og styttir ferðatímann og hægðirnar verða mýkri. Of mikil og langvarandi notkun getur valdið röskun á vökva- og saltajafnvægi, þar með talið of lágu kalíum í blóði.
      • Senna (Senokot). Undanþágulyf. Hefur áhrif á hreyfingu þarma, getur leitt til vökvataps og að eðlilegar þarmahreyfingar fari úr skorðum við langtíma notkun.
      • Bisacodyl (Toilax). Hefur áhrif á hreyfingu þarma.

     

    Börn

    1. Yngri en 1 árs
    a. Lactulosum/Sorbitol – sjá frekari upplýsingar að ofan 
    2. Eldri en 1 árs
    a. Macrogol (Movicol) – sjá frekari upplýsingar að ofan 

     

    Iðrabólga (IBS)

    Hægðatregða ríkjandi einkenni IBS-C

    Fyrsta val:

    Sterkuliagummi - Inolaxol (til sem undanþágulyf). Mikilvægt er að hækka skammtinn smám saman á nokkrum vikum þar sem of hár upphafsskammtur getur haft áhrif til versnunar á magaverkjum og uppþembu hjá þessum sjúklingahópi. Upphafsskammtur er ½-1 skammtur á dag. Takist helst með mat. 

    Macrogol - sjá að ofan

    Annað val - við slæmri IBS-C með hægðatregðu ríkjandi

    Linaclotide - Constella (til sem undanþágulyf)

    Linaclotide er guanylate cyclase C agonisti og hækkar cGMP sem leiðir til örvunar á þarmahreyfingum vegna vökvasekretionar og þar að auki dregur það úr visceral hypersensitivet. Klínískar rannsóknir sýna að linaclotide dregur úr magaverkjum, uppþembu og hægðatregðu hjá sjúklingum með IBS-C. Algengasta aukaverkunin er niðurgangur, en má draga úr ef linaclotide er tekið 30 mínútum fyrir máltíð. Lyfið virkar staðbundið í þarminum og frásogast mjög lítið. NNT er 5-8. Linaclotide má nota sem viðbót eða eitt og sér. Endurmat eftir fjórar vikur og eingöngu haldið áfram við verkun næst. 

    Niðurgangur ríkjandi einkenni IBS-D

    Loperamide - sjá að ofan

    Kviðverkir - aðallega verið IBS -D

    Amitriptyline

    TCA sem hefur þekkta verkun við ýmis konar verkjum og virkar vel með magaverkjum vegna iðarbólgu. NNT er 4,5. Upphafsskammtur er 10 mg fyrir svefn sem má hækka smám saman í 25-50 mg. Nokkrar vikur tekur að ná fullri verkun. Amitriptyline hefur andkólínvirkar aukaverkanir svo sem hægðatregðu og munnþurrk. Aukaverkunin getur haft jákvæð áhrif á niðurgang vegna IBS-D.

    Lyf og kostnaður

    Starfræn meltingarónot  Amitriptyline  10 mg  1.928 kr/3 mán 
       Amitriptyline  25 mg  2.276 kr/3 mán
           
     Vélindabakflæði  Omeprazole hylki

     20 mg
     40 mg

     2.070 kr/3 mán*
     3.930 kr/3 mán*
       Esomeprazole
     20 mg 
     40 mg 
     4.615 kr/3 mán*
     5.780 kr/3 mán*
       Rabeprazol  10 mg
     20 mg
     4.850 kr/3 mán*
     3.693 kr/3 mán*
       Lansoprazole  30 mg  5.046 kr/mán*
                

     Skeifugarnarsár og Helicobacter pylori
     jákvætt vélindasár
         
     7 daga meðferð  Omeprazole  20 mg x 2  /14 stk
       Amoxicillin  500 mg 2x2   2.583/28 stk*
       Clarithromycin  500 mg x 2  2.551/14 stk*
     Penicillin ofnæmi  Metronidazole  500 mg x 2  2.217/14 stk
           
     Helicobacter pylori neikvætt vélindasár 
        Omeprazole  20 mg x 1  1.242/8 vikur
           
     Ógleði  Metoklopramide  10 mg  2.336/50 stk
           
     Ferðaveiki  Meclozine  25 mg  /100 stk
           
     Niðurgangur  Loperamide  2 mg

     /20 stk

           
     Niðurgangur vegna gallsýra  Cholestyramine  4 mg  15.196/100 stk    
           
     Hægðatregða hjá fullorðnum  Sterkuliagummi  Inolaxol  
       Macrogol  Movicol  
       Sorbitol    
       Prukalopride  Resolor 2 mg   65.028/3 mán
       Microlax    
       Natriumpicosulfat    
           
     Iðrabólga      
     Hægðatregða ríkjandi einkenni - IBS-C  Macrogol  Movicol  
       Linaclotide  290 mcg  53.643/3 mán 
           
     Niðurgangur ríkjandi einkenni  Loperamide  2 mg  
           
     Kviðverkir  Amitriptylin  10 mg
     25 mg
     1.928 kr/3 mán
     2.276 kr/3 mán
           

    Öll verð eru miðuð við lyfjaverðskrá í ágúst 2022. *Viðmiðunarverð tekur mið af lægsta verði pr. einingu lyfs og vinnureglum Lyfjastofnunar um röðun lyfja í viðmiðunarverðflokka. Lyfjaverðskrá birtir ekki verð lausasölulyfja.

    Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu 

    Álfabakka 16 - sími 513-6300

    throunarmidstod@heilsugaeslan.is

    Development Centre for Primary Healthcare in Iceland (DCPHI)

    Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira