Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Óskar Reykdalsson og Emil L. Sigurðsson skrifa 19.10.2018
Þróunarstofa hefur verið rekin innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), frá árinu 2009 og hefur sinnt heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Síðastliðið vor tilkynnti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þá ákvörðun sína að breyta verkefnum Þróunarstofunnar og skal ný eining þjóna öllum heilsugæslustöðvum í landinu.
Hlutverk Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) verður þannig útvíkkað og má þar nefna:
- Skipulag kennslu á heilbrigðissviði á heilsugæslustöðvum
- Sinna vísinda- og gæðaþróunarverkefnum
- Þróa og innleiða gæðavísa
- Leiða þverfaglegt samstarf, samræming verklags innan þróunarmiðstöðvar og á landsvísu
- Stuðla að fræðslu til almennings
- Stuðla að gæðaþróun og framförum í heilsugæslu í samráði við heilbrigðisstofnanir sem reka heilsugæslustöðvar og sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðvar
- Tryggja gæði og skilvirkni þjónustunnar
- Stuðla að gagnreyndri samræmdri heilsugæsluþjónustu á landsvísu
Fagráð
Heilbrigðisráðherra hefur skipað fagráð sem í eru fulltrúar þeirra heilbrigðisstofnana sem veita heilsugæsluþjónustu. Þannig munu bæði opinbert reknar stöðvar sem og einkareknar stöðvar hafa aðkomu að ÞÍH. Þannig á að tryggja sjálfstæði einingarinnar og líka tengsl við heilsugæslustöðvar.
Verkefnin
Ósmitbærir sjúkdómar aukast hlutfallslega og eru þeir nú meirihluti þeirra verkefna sem heilbrigðiskerfið fæst við. Lífsstílstengdir sjúkdómar, eins og offita og fullorðinssykursýki eru að aukast. Þjóðin er að eldast og við lifum lengur og oft með fleiri en einn sjúkdóm á efri árum. Þannig eru fjölsjúkdómar og fjöllyfjameðferð að aukast. Verkefni heilsugæslunnar og þjónusta hennar verður að taka mið af þessum breytingum. Efling frumþjónustunnar er lykilatriði í framtíðarskipan heilbrigðisþjónustunnar.
Mörkuð hefur verið sú stefna að auka og breikka þá fagþjónustu sem veitt er á heilsugæslustöðvum m.a. með sálfræðingum og vonandi fleiri stéttum í framtíðinni. Teymisvinna er því lykilatriði nú sem endranær í starfseminni. Það verður því mikilvægt verkefni að tvinna saman hina ýmsu faghópa heilsugæslunnar í eina sterka þjónustueiningu sem á samræmdan skilvirkan hátt veitir íbúum landsins góða grunnþjónustu.
ÞÍH tók til starfa í október 2018 og eru bundnar vonir við að efla megi faglegt starf á öllum heilsugæslustöðvum landsins með tilkomu hennar. Fagfólki stöðvanna, bæði stærri og minni stöðva, ætti að skapast betri tækifæri til þátttöku í gæðaþróun, vísindavinnu og gerð klínískra leiðbeininga.
Hér er því um að ræða kærkomna styrkingu. Vilyrði hafa verið gefin fyrir áframhaldandi uppbyggingu ÞÍH og ætti hún því að geta orðið öflug þjónustueining fyrir alla heilsugæsluna í landinu.