Vel heppnaður fræðsludagur um bólusetningar 2025

Mynd af frétt Vel heppnaður fræðsludagur um bólusetningar 2025
15.05.2025

Fræðsludagur um bólusetningar, fyrir starfsfólk í heilsugæslu og aðra áhugasama fagaðila, var haldinn þann 30. apríl 2025 á Hótel Reykjavík Natura. Þetta var í áttunda sinn sem fræðsludagurinn er haldinn, en hann er á vegum sóttvarnalæknis og Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu. Hægt var að tengjast fjarfundi í gegnum Teams sem margir nýttu sér og var þátttaka góð. Þátttökugjald var ekkert. 

Dagskráin var fjölbreytt og góðar umræður. Fjallað var um bólusetningar barna frá fjölbreyttu sjónarhorni, svo sem reynslunni af nýlegum breytingum á fyrirkomulagi barnabólusetninga, þema alþjóðlegrar bólusetningaviku í íslensku samhengi, RSV ónæmisaðgerðir ungra barna frá 2025, inflúensubólusetningar ungra barna frá 2026, aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og bólusetningar gegn öndunarfærasýkingum hjá fullorðnum. 

Glærur frá fræðsludeginum eru aðgengilegar á læstri síðu ÞÍH. Upptaka af fræðsludeginum verður sett inn síðar.

Á myndinni má sjá Kamillu S. Jósefsdóttur, yfirlækni bólusetninga sóttvarnasviði sem stendur við pontu og Sólveigu Jóhannsdóttur fagstjóra hjúkrunar Heilsugæslunni Efstaleiti.