Á barnið þitt rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum?

Mynd af frétt Á barnið þitt rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum?
31.12.2014

Frá 1. janúar 2015 verða tannlækningar 3 ára barna og barna á aldrinum 8 - 17 ára greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2500 kr árlegu komugjaldi.

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er háð því að börnin séu skráð hjá heimilistannlækni og því eru foreldrar hvattir til að skrá barn/börn í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands á www.sjukra.is. Tannlæknar geta einnig séð um skráninguna, sé þess óskað. 

Mælt er með skráningu barns hjá heimilistannlækni við eins árs aldur .

Nú eru tæplega 50.000 börn skráð í Réttindagáttina.

Tannlækningar eru nú gjaldfrjálsar fyrir eftirfarandi hópa:

  • 3 ára börn, þ.e. frá 3 ára afmælisdegi að 4 ára afmælisdegi.
  • Börn á aldrinum 8 til og með 17 ára.
  • Börn í bráðavanda sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Tilvísun þarf að berast tannlækni frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum og skilyrði að Sjúkratryggingar Íslands hafi samþykkt umsókn frá tannlækni á grundvelli tilvísunar.

Tannlæknaþjónusta barna verður innleidd í  áföngum og frá 1. janúar 2018 verða tannlækningar allra barna yngri en 18 ára greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2500 kr árlegu komugjaldi.