Tegundir ofbeldis
- Andlegt/tilfinningalegt
Andlegt ofbeldi er þegar einhver hótar, gerir lítið úr eða lætur einstaklingi líða illa. Það getur verið bæði með orðum og hegðun. - Líkamlegt
Líkamlegt ofbeldi er það þegar einhver meiðir, til dæmis klípur, sparkar, hrindir eða lemur. Hótun eða ógnun um að meiða er einnig líkamlegt ofbeldi. - Kynferðislegt
Kynferðisofbeldi er þegar einhver fær einstakling til að gera eitthvað kynferðislegt sem hann vill ekki gera. Eins og ef einhver káfar eða áreitir á kynferðislegan hátt.Kynferðisleg þvingun eða áreiti er ofbeldi - Fjárhagslegt
Enginn hefur rétt á að nota annarra peninga eða stjórna því hvernig þeir eru notaðir. Fjárhagslegt ofbeldi er notað til að stjórna manneskju gegnum fjármál. Það getur til dæmis verið með því að ákveða hvað má og má ekki kaupa, neita um að fá eigin peninga. - Stafrænt
Það er stafrænt ofbeldi þegar ofbeldi er beitt gegnum síma, tölvu eða samfélagsmiðla (eins og TikTok, Facebook, Twitter, Instagram eða Snapchat). - Vanræksla
Vanræksla er þegar einhver sinnir ekki þörfum hjálparvana einstaklings, til dæmis barni, fatlaðri manneskju eða eldri manneskju - Eltihrellir/umsáturseinelti
Eltihrellir (stalker) hótar, eltir, fylgist með eða ofsækir á einhvern hátt aðra manneskju. Eltihrellir situr um aðra til þess að stjórna og ógna. - Trúarofbeldi
Þegar einhver notar andlega vinnu eða trúarbrögð til að hræða, særa eða stjórna kallast það trúarofbeldi. - Heiðursofbeldi
Heiðursofbeldi er þegar einhver beitir ofbeldi til að verja heiður fjölskyldunnar, oft náinn ættingi. Þegar heiður er settur ofar mannréttindum, þá er það ofbeldi. - Limlestingar á kynfærum kvenna (FGM Female genital mutilation)
Limlestingar á kynfærum kvenna er misþyrming og ofbeldi sem er ólöglegt á Íslandi. WHO skilgreinir FGM sem aðgerðir þar sem hluti af eða öll ytri kynfæri kvenna eru fjarlægð eða önnur skaðleg inngrip framkvæmd á kynfærum þeirra, án læknisfræðilegrar ástæðu.