Heilsugæslustöðvar
Sérnámsgrunnslæknum býðst að starfa ýmist á landsbyggðinni eða á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er í boði að skipta heilsugæslutímanum upp og starfa tvo mánuði á landsbyggð og tvo mánuði á höfuðborgarsvæðinu.
Heilsugæslustöðvarnar sinna almennri læknis- og hjúkrunarþjónustu, slysa- og bráðaþjónustu, dag- og síðdegisvakt, ungbarna- og mæðravernd, bólusetningum, heilsuvernd skólabarna, sálfræðiþjónustu fjölskyldna, barna og ungmenna og kennslu heilbrigðisstétta.
Aðlögun og vinnuskipulag
Sérnámsgrunnslæknir fundar með fagstjóra lækninga í byrjun þar sem farið er yfir praktísk mál varðandi vinnutíma, viðveruskráningu, laun og fleira. Nauðsynlegt er að sérnámsgrunnslæknir hafi samband að minnsta kosti tveimur vikum fyrir komu til að hægt sé að undirbúa komuna meðal annars vegna launa og tölvuaðgangs.
Þegar læknirinn mætir í heilsugæsluna fer fram kynning á starfsvettvangi, heilsugæslustöðinni, og farið yfir aðstöðu, verkferla og til hvers er ætlast og hver markmið eru með dvöl í heilsugæslunni. Lögð er áhersla á að byrja rólega með færri sjúklinga til að sérnámsgrunnslæknir aðlagist vinnuskipulagi og tímakröfum. Reynt er að haga aðlögun í samræmi við fyrri reynslu og þekkingu viðkomandi.
Þegar aðlögun lýkur tekur sérnámsgrunnslæknir venjulega fulla móttöku auk dagvakta/húsvakta og síðdegisvakta. Hann sinnir móttöku ,símatímum og dagvöktum/húsvöktum í heilsugæslunni á venjulegum vinnutíma sem er frá 8-16. Hvert viðtal í móttöku er 20 mínútur. Að lokinni aðlögun sinnir sérnámsgrunnslæknir einnig síðdegisvakt frá 16-18. Að jafnaði er gert ráð fyrir hálfum degi í viku til að sinna pappírsvinnu eða lestri.
Sérnámsgrunnslækni er leyfilegt að bóka tvöfalda tíma fyrir t.d. geðviðtöl en einnig að bóka flókin tilfelli og verk í samráði og með heimilislækni viðkomandi sjúklings. Einnig er hann hvattur til að veita góða eftirfylgd m.a. með símtölum eða nýrri komu. Sérnámsgrunnslæknir nýtur alltaf stuðnings heimilislækna stöðvarinnar, í móttöku og á dagvakt og síðdegisvakt. Lögð er áhersla á stundvísi og að klára vinnulista tímalega
Kennsla og handleiðsla
Sérnámsgrunnslæknir hefur gott aðgengi að heimilislæknum stöðvarinnar og er hvattur til að leita óspart til þeirra til að ræða tilfelli og þá sérstaklega í byrjun tímabilsins. Að jafnaði er gert ráð fyrir að hann leiti til þess heimilislæknis sem sjúklingur sem um er rætt er skráður hjá. Sérnámsgrunnslæknir á að kynnast ungbarna- og mæðravernd og starfar með hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum.
Fræðslufundir eru að jafnaði einu sinni í viku og ætlast er til að sérnámsgrunnslæknir sjái um a.m.k. einn fræðslufund á meðan á tíma í heilsugæslu stendur. Sérnámsgrunnslæknir fær úthlutað að jafnaði einni klst á viku í s.k. nótna- eða tilfellafundi með heimilislækni/handleiðara. Þar er á skipulagðan hátt farið yfir nótur úr sjúkraskrá eða rædd tilfelli eða sérstök vandamál sem hann hefur rekist á í starfi sínu. Mögulegt er að fá myndbandsgátun úr sjúklingamóttöku eða SMS (setið með sérfræðingi) sem getur verið afar gagnlegt fyrir sérnámsgrunnslæknirinn.
Kennslustjóri og námsmat
Kennslustjóri lækna er skilgreindur á hverri heilsugæslustöð og hittir sérnámsgrunnslækni í upphafi námsdvalar, á miðju tímabils og við lok þess. Kennslustjóri er ábyrgur fyrir skipulagi námstímans og er sérnámslækni til stuðnings og ráðgjafar. Við námsmat á þessu ári er notast við rafræna skráningu, e-Portfolio. Sérnámsgrunnslæknir er sjálfur ábyrgur fyrir því að matsblöð séu fyllt út í samræmi við kröfur námsins. Í lok námstíma er gert lokamat á frammistöðu sérnámslæknis og farið yfir niðurstöður þess með viðkomandi.