• Heilsugæslan
heilsuvera-logo
  • Svið ÞÍH
    • Svið ÞÍH - Yfirlit
    • Mæðravernd
    • Ung- og smábarnavernd
    • Heilsuvernd skólabarna
    • Lyfjasvið
    • Gæðaþróunarsvið
    • Sjúkraþjálfunarsvið
    • Næringarsvið
    • Sálfræðiþjónusta
    • Heilsueflandi þjónusta
    • Farsæld barna
  • Kennsla
    • Kennsla - Yfirlit
    • Sérnám í heimilislækningum
    • Sérnám í heilsugæsluhjúkrun
    • Sérnámsgrunnslæknar
    • Námskeið fyrir fagfólk
  • Leiðbeiningar
    • Leiðbeiningar - Yfirlit
    • Sykursýkismóttaka
    • Strama verkefnið
    • Lyfjaleiðbeiningar
    • Eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu
    • Heilsueftirlit fatlaðs fólks
    • Heimilisofbeldi - ofbeldi í nánum samböndum
    • Veikindi eftir Covid-19
    • Fræðsla um fötlun
    • Börn sem aðstandendur
    • Fjölskylduteymi
    • Væg til miðlungs einkenni kvíða, depurðar og áfallastreitu
    • Breytingaskeið kvenna
    • Geðheilbrigði aldraðra
    • Í öruggum höndum
    • ME sjúkdómurinn
    • Háþrýstingur
    • Offita hjá börnum og unglingum - leiðbeiningar fyrir heilsugæslu
    • Limlestingar á kynfærum stúlkubarna
  • Verkfæri
  • Um ÞÍH
    • Um ÞÍH - Yfirlit
    • Stjórnun og skipulag
    • Svið ÞÍH
    • Stefna
    • Ársskýrslur og tölfræði
    • Fréttasafn
    • Starfsfólk ÞÍH
    • ÞÍH tíðindi
    • Greinasafn ÞÍH
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
  • Svið ÞÍH
    • Svið ÞÍH

      • Mæðravernd
      • Ung- og smábarnavernd
      • Heilsuvernd skólabarna
      • Lyfjasvið
      • Gæðaþróunarsvið
      • Sjúkraþjálfunarsvið
      • Næringarsvið
      • Sálfræðiþjónusta
      • Heilsueflandi þjónusta
      • Farsæld barna
  • Kennsla
    • Kennsla

      • Sérnám í heimilislækningum
      • Sérnám í heilsugæsluhjúkrun
      • Sérnámsgrunnslæknar
      • Námskeið fyrir fagfólk
  • Leiðbeiningar
    • Leiðbeiningar

      • Sykursýkismóttaka
      • Strama verkefnið
      • Lyfjaleiðbeiningar
      • Eftirfylgd með konum sem greinst hafa með heilsuvanda á meðgöngu
      • Heilsueftirlit fatlaðs fólks
      • Heimilisofbeldi - ofbeldi í nánum samböndum
      • Veikindi eftir Covid-19
      • Fræðsla um fötlun
      • Börn sem aðstandendur
      • Fjölskylduteymi
      • Væg til miðlungs einkenni kvíða, depurðar og áfallastreitu
      • Breytingaskeið kvenna
      • Geðheilbrigði aldraðra
      • Í öruggum höndum
      • ME sjúkdómurinn
      • Háþrýstingur
      • Offita hjá börnum og unglingum - leiðbeiningar fyrir heilsugæslu
      • Limlestingar á kynfærum stúlkubarna
  • Verkfæri
    • Verkfæri

  • Um ÞÍH
    • Um ÞÍH

      • Stjórnun og skipulag
      • Svið ÞÍH
      • Stefna
      • Ársskýrslur og tölfræði
      • Fréttasafn
      • Starfsfólk ÞÍH
      • ÞÍH tíðindi
      • Greinasafn ÞÍH
ForsíðaSvið ÞÍHSálfræðiþjónustaFullorðnir - Aðstæðubundinn vandi: Úrræði

Fullorðnir - Aðstæðubundinn vandi: Úrræði

  • Mæðravernd
  • Ung- og smábarnavernd
  • Heilsuvernd skólabarna
  • Lyfjasvið
  • Gæðaþróunarsvið
  • Sjúkraþjálfunarsvið
  • Næringarsvið
  • Sálfræðiþjónusta
    • Börn - Bjargráð á biðtíma
    • Fullorðnir - Aðstæðubundinn vandi: Úrræði
    • Sjálfsvígshætta
    • Gulur september
    • BCI
  • Heilsueflandi þjónusta
  • Farsæld barna

Bráður vandi - sjálfsvígshugsanir

  • Í neyðartilfellum hringja í 112
  • Bráðamóttaka geðdeildar 
    • er staðsett á Hringbraut og er opin frá kl. 12-19 á virkum dögum og kl. 13-17 á frídögum.
    • Sími bráðamóttöku geðdeildar er 543-4050 á opnunartíma.
    • Á öðrum tímum er móttakan á bráðamóttöku í Fossvogi.
    • Hægt er að leita þangað með áríðandi mál af geðrænum toga án þess að eiga pantaðan tíma. 
  • Sjá hjálpleg símanúmer og hlekki í lesefni um sjálfsvígshugsanir hér á heilsuveru. 

 

Ráðgjöf í síma:

  • Sjálfsvígshugsanir: Píeta samtökin
    • Sími 552-2218. Opið allan sólarhringinn 
    • Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Boðið er upp á viðtöl og stuðningshópa fyrir 18 ára og eldri.
  • Heilsugæslan 
    • Símaráðgjöf upplýsingamiðstöðvar heilsugæslunnar:1700 Opið allan sólarhringinn.
  • Hjálparsími Rauða Krossins: 1717
    • Hjálparsíminn er alltaf opinn. Trúnaði og nafnleynd er heitið og hann er ókeypis.

 

Netspjall:

  • Ef þú vilt ekki tala við einhvern í síma geturðu haft samband í gegnum netspjall.
    • Netspjall 112.is
    • Netspjall 1717

 

ÞJÓNUSTA FYRIR FULLORÐNA

  • Heilsugæslan 
    • Hægt er að leita til heilsugæslu á opnunartíma en hér má finna næstu heilsugæslustöð.

 

Aðstandendur fólks með áfengis- og/eða fíknivanda

  •  Aðstandendur fólks með áfengis- og/eða vímuefnavanda (SÁÁ)
    • Viðtalsþjónusta er í boði alla virka daga frá kl. 8.15 – 12.00 og 13.00 – 16.00. Hana geta allir aðstandendur nýtt sér, bæði þeir sem vita að einhver þeim nákominn á við áfengis- og vímuefnavanda að stríða og hinir sem eru í vafa og vilja fá upplýsingar og greiningu. 
    • Viðtölin taka oftast um 45 mínútur. Hægt er að panta tíma í síma 530-7600.

 

  • Fjölskyldumeðferð (SÁÁ)
    • Fjölskyldumeðferð tekur fjórar vikur og er haldin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16.00 til 18.00. 
    • Að lokinni fjölskyldumeðferð geta þátttakendur nýtt sér stuðningshóp sem hittist vikulega í Von, Efstaleiti 7

 

  • Aðstandendur ungmenna með áfengis- og/eða vímuefnavanda (SÁÁ)
    • Foreldranámskeið
      • Foreldranámskeið er sérstaklega ætlað foreldrum og/eða öðrum aðstandendum ungmenna (15-25 ára) sem eiga í áfengis- og/eða vímuefnavanda, hvort sem þau hafi farið í meðferð hjá SÁÁ eða ekki.
      • Foreldranámskeiðið er byggt á gagnreyndum aðferðum eins og áhugahvetjandi samtali (Motivational Interviewing) og CRAFT (Community Reinforcement and Family Training). 
      • Heildarverð námskeiðs eru 50.000 kr fyrir einstakling og 75.000 kr fyrir par. Innifalið í verði er handbók sem innheldur ítarlegar upplýsingar um allt sem farið er yfir á námskeiðinu.
        Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið foreldrar@saa.is með fullu nafni, kennitölu, tölvupóstfangi og símanúmeri hjá þeim er hyggjast taka þátt. Skráning er einnig hjá göngudeild SÁÁ í síma 530-7600.

 

  • Al-anon fundir
    • Al-Anon fjölskyldudeildirnar eru félagsskapur karla, kvenna og unglinga sem hafa átt ættingja eða vin með áfengisvanda. Al-Anon leiðin er sjálfshjálparaðferð byggð á tólf reynslusporum AA-samtakanna. Sjá fundaskrá. 

ADHD

  • Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna (heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins)
    • 2. stigs þjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri á landsvísu.
    • Meginverkefni teymis eru: 
      • Að annast frumgreiningu og meðferð vegna ADHD hjá fullorðnum.
      • Endurmat vegna ADHD greininga frá barnsaldri.
      • Endurmat vegna ADHD meðferðar á fullorðinnsaldi, hafi rof orðið í meðferð og lyfjaskírteini runnið út.
      • Að veita mat vegna áframhalds á ADHD lyfjameðferð fyrir einstaklinga sem flytja til Íslands með ADHD greiningu og lyfjameðferð.
    • Teymið veitir einnig ráðgjöf og fræðslu til annarra fagstétta. 
    • Gjald fyrir ADHD greiningu / þjónustu er 27.175 kr óháð fjölda heimsókna.
    • Aðeins er tekið við tilvísunum frá heimilis- og heilsugæslulæknum.
    • Upplýsingar um fyrirkomulag tilvísana er að finna á vefsíðu teymisins. 
    • Sími 513-6730, ADHD@heilsugaeslan.is

 

  • ADHD samtökin
    • Á vefsíðunni er að finna greinar og fræðsluefni um einkenni og greiningar á ADHD. Haldin eru námskeið fyrir notendur og aðstandendur þeirra sem eru með ADHD. Vefverslun með bækur og annað sem tengist ADHD.

 

  • Bækur 
    • ADHD fullorðinna
    • Farið er yfir lykileinkenni og orsakir ADHD, þróun einkenna yfir æviskeiðið, birtingarmyndir og mögulega fylgikvilla, eins og kvíða og þunglyndi. Fjallað er um greiningarferli, meðhöndlun og helstu styrkleika sem fylgt geta því að vera með ADHD. Eins er greint frá leiðum til að bæta skipulag, einbeitingu, tímastjórn og minni, sem og aðferðum til að draga úr frestun.
    • Hámarksárangur í námi með ADHD (les- og verkefnabók) 
    • eru bækur skrifaðar um nám og námstækni fyrir einstaklinga með ADHD

 

  • 8 vikna vefnámskeið um ADHD á stofu: ADHDKAOS
    • Kostnaðurinn við þátttöku er 14.990 kr. 

Einhverfa með þroskahömlun.

  • Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana starfar á landsvísu
    • Markhópur teymisins er fólk með þroskahamlanir og/eða hamlandi einhverfu sem þarfnast sértækrar geðheilbrigðisþjónustu vegna geðræns vanda.
    • Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimavitjunum og viðtölum í húsnæði teymisins. Í teyminu starfa atferlisfræðingur, geðlæknir, heimilislæknir, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sálfræðingur og þroskaþjálfar.
    • Flestir njóti stoðþjónustu félagsþjónustunnar vegna fötlunar sinnar.
    • Geðheilsuteymið er fyrir þá sem þurfa meiri og sérhæfðari þjónustu en veitt er á vegum heilsugæslunnar.
    • Teymið sinnir ekki frumgreiningu s.s. vegna gruns um einhverfu eða skyldar raskanir. 
    • Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana starfar á landsvísu.
    • Tekið er við umsóknum frá heimilislæknum á heilsugæslum og/eða heilbrigðisstofnunum. 
      • Heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu nota: Beiðni um meðferð, velja viðeigandi deild og fylla út flýtitexta.
      • Heimilislæknar á landsbyggðinni nota: Tilvísun, velja viðeigandi deild og fylla út flýtitexta.
      • Mikilvægt er að tilvísun sé vel útfyllt svo hægt sé að taka afstöðu til hennar. Flýtitextinn minnir á hvað þarf að koma fram. 
      • Ófullnægjandi tilvísun verður endursend.
    • Svarað er í síma 513-6750 virka daga frá kl. 8-16.
    • tteymi@heilsugaeslan.is

Fangar

Þjónusta fyrir fanga:

Eftir afplánun: 

  • Aðstoð eftir afplánun - Rauði krossinn á Íslandi (raudikrossinn.is)
    • Aðstoð eftir afplánun er verkefni ætlað fólki sem hefur lokið afplánun eða er í afplánun. Sjálfboðaliða er ætlað að aðstoða einstaklinginn við ýmislegt er varðar daglegt líf og þær breytingar sem verða við það að ljúka afplánun, s.s. húsnæðis- og atvinnuleit, viðtöl við félagsráðgjafa, skipulagningu fjármála, efla félagslegt öryggi og öðlast tiltrú á eigin getu sem áhrifavalds í eigin lífi.
    • Frekari upplýsingar í síma 786 7133/570 4062, á netfangið eftirafplanun@redcross.is eða hjá félagsráðgjafa Fangelsismálastofnunar.

 

Aðstandendur fanga: 

  • Bjargráð
    • Aðstoð fyrir fjölskyldur þeirra sem bíða eftir að afplána refsingu, eru í afplánun eða hafa lokið afplánun. Þjónustan er öllum opin óháð trúar- og/eða lífsskoðun.
    • Hægt er að panta tíma hjá fjölskyldufræðingum Bjargráðs í gegnum tölvupóst, síma eða í gegnum síðu Bjargráðs á facebook. 

 

Fíkn

  • Bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma - Landspítali (landspitali.is)
    • 16 rúma legudeild, meðal legutími eru 5 dagar
    • Á deildinni er lögð áhersla á þjónustu fyrir einstaklinga sem glíma við tvíþættan vanda, það er alvarlegan geð- og vímuefnavanda.
    • Markmið með innlögnum á deildina er að einstaklingar nái lágmarks jafnvægi til að geta nýtt sér önnur meðferðarúrræði, sé vilji fyrir því. 
    • Ekki er heimilt að nota vímuefni og öllum stendur til boða að fá fráhvarfsmeðferð.
  • Teigur, Dagdeild fíknimeðferðar, Landspítala
    • Dagdeildin Teigur sinnir einstaklingum með tvíþættan vanda, það er vímuefnavanda auk annars geðræns vanda. 
    • Meðferðin á Teigi er fyrir einstaklinga sem hafa hætt notkun vímugjafa og stefna að áframhaldandi edrúmennsku. Meðferðin byggir á hugrænni atferlismeðferð.
    • Ekki er veitt fráhvarfsmeðferð á Teigi.
    • Meðferðin á Teigi er fimm vikur, alla virka daga frá 10 -12.
  • SÁÁ
    • Hægt er að óska sjálfur eftir þjónustu SÁÁ í síma 530-7600 
      • Ráðgjafa og stuðningsviðtöl vegna áfengis og vímuefnavanda, sjá upplýsingar hér: Reykjavík og Akureyri.
      • Á göngudeildunum er hægt að taka þátt í meðferðar- og stuðningshópum.
      • Þar eru starfræktir ungmennahópar.
    • Spilafíkn
      • Meðferð við spilafíkn er í Von, Efstaleiti 7, á fimmtudögum kl 16:00 stuðningshópur er kl 17:00. Um er að ræða fyrirlestra og hópfundi.
      • Meðferðin er gjaldfrjáls
    • Vogur. Afeitrun, greining og fráhvarfsmeðferð.
      • Á Sjúkrahúsinu Vogi eru rúm fyrir um 60 sjúklinga. Innlagnir eru 6-7 á dag, alla daga ársins. Meðalaldur er 35 ár. 
      • Á Sjúkrahúsinu Vogi fá sjúklingar afeitrun og greiningu. Læknir leggur mat á meðferðarþörf. 
      • Flestir eru undir áhrifum vímuefna eða í fráhvörfum við komu. Fráhvarfsmeðferð er veitt af læknum og hjúkrunarfræðingum. 
      • Á sérstökum sjúkragangi, Gátinni, á Vogi eru 11 sjúkrarúm fyrir veikustu sjúklingana. Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og ráðgjafar eru til staðar allan sólarhringinn. Læknir er einnig á vakt á sjúkrahúsinu alla daga vikunnar og á bakvakt kvöld og nætur.
      • Meðferðarúrræði sem hefjast á Vogi:
        • Kvennameðferð
        • Karlameðferð
        • Ungmennameðferð
        • Meðferð fyrir endurkomumenn
        • Meðferð fyrir karlmenn 55 ára og eldri
        • Viðhaldsmeðferð fyrir ópíóíðafíkn (morfínskyld lyf)
        • Meðferð fyrir langt gengna á meðferðarheimili á Viðarhöfða (Vin)
        • Inniliggjandi langtímameðferð
        • Göngudeildarmeðferð í Reykjavík
          • 13-15 fjóra daga vikunnar í fjórar vikur, síðan 1xviku í 3 mánuði
        • Göngudeildarmeðferð á Akureyri
      • Eftirmeðferð:
        • Stuðningshópar leiddir af fagaðilum
        • Jafningjastuðningur eins og AA/NA fundir
  • Meðferðarheimilið Krýsuvík
    • Tekið er á móti umsóknum um meðferð í Krýsuvík að Austurgötu 8 Hafnarfirði á þriðjudögum frá:10:00-12:00.
      Tekið er á móti umsóknum símleiðis ef viðkomandi býr úti á landi í síma 565 5612
    • Meðferðin byggist á 12 spora kerfinu og er að lágmarki 6 mánuðir. 
    • Meðferðin er einstaklingsmiðuð. Stór hluti af meðferð einstaklinga fer fram í einkaviðtölum en einnig eru morgunfundir, grúppur, fyrirlestrar, kennsla, líkamsrækt, göngutúrar, AA fundir ofl. Þverfagleg þjónusta. 
  • Hlaðgerðarkot meðferðarheimili
    • Inniliggjandi meðferð í 12 vikur eða lengur. Þverfagleg þjónusta. 
    • Umsókn er rafræn. Hægt er að sækja um sjálfur. Fagfólk getur líka sent umsókn.

Flóttafólk

Ráðgjöf fyrir flóttafólk:

  • Vinnumálastofnun starfrækir ráðgjafaþjónustu fyrir flóttafólk. Þjónustan er gjaldfrjáls og fyllsta trúnaðar er gætt.
  •  Ráðgjafanir tala íslensku, ensku, pólsku, spænsku, arabísku, úkraínsku og rússnesku.
  • Stuðningur fyrir innflytjendur til að auðvelda þeim fyrstu sporin á Íslandi.
  • Samstarf við helstu stofnanir og samtök á Íslandi.
    • Grensásvegur 9, 108 Reykjavík.Viðtalstímar eru frá 10:00 – 12:00, á virkum dögum.
    • ÍsafjörðurÁrnagata 2 – 4, 400 Ísafjörður. Viðtalstímar eru frá 09:00 – 12:00, á virkum dögum.

Að sækja um alþjóðlega vernd:

  • Þeir sem eru að sækjast eftir alþjóðlegri vernd geta farið í þjónustumiðstöðina í Dómus, sem er staðsett á Egilsgötu 3, 101 Reykjavík.
  • Almennir opnunartímar eru frá 08:00 til 16:00.
  • Ráðgjafar MCC geta tekið á mótið fólki milli 09:00 og 12:00, á virkum dögum.
  • Upplýsingar um að sækja um alþjóðlega vernd

Geðheilbrigðisvandi sem krefst teymisþverfaglegrar þjónustu til lengri tíma

  • Geðheilsuteymi HH (Höfuðborgarsvæðið)
    • Geðheilsuteymin eru fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem greindir eru með geðsjúkdóma og þurfa á þverfaglegri aðstoð ásamt þéttri eftirfylgd að halda. 
    • Geðheilsuteymin eru fyrir þá sem þurfa meiri og sérhæfðari þjónustu en er veitt á heilsugæslustöðvum, nánar tiltekið:
      • F20-F29 - Geðrofssjúkdómar
      • F30-F39 - Lyndisraskanir, geðhvörf, þunglyndi 
      • F40-F48 - Kvíðaraskanir
      • F50-F50.9 - Átraskanir 
      • F60-F60.9 - Persónuleikaraskanir
    • Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimavitjunum og viðtölum í húsnæði geðteymisins. Í teymunum starfa fagstéttir eins og hjúkrunarfræðingar, sjúkraliði, sálfræðingar, geðlæknar, notendafulltrúar, íþróttafræðingur, þjónustufulltrúar, félagsráðgjafar, fjölskyldufræðingur og iðjuþjálfi.
    • Tekið er við umsóknum frá starfsmönnum heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
    • Heilbrigðisstarfsfólk sendir tilvísun rafrænt í gegnum Sögu. 
      • Þegar sent er innan HH er notað: Beiðni um meðferð (flýtitexti ) 
      • Þegar send er rafræn tilvísun milli stofnanna er notað: Tilvísun (flýtitexti )  
    • Annað fagfólk notar þetta eyðublað.       
      • Tilvísun til Geðheilsuteyma HH
    • Mikilvægt er að tilvísun sé vel útfyllt svo hægt sé að taka afstöðu hennar. Ófullnægjandi tilvísun  verður endursend.
      Fyllið umsóknareyðublað út rafrænt, vistið og sendið í gegnum örugg gagnaskil. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki 
      • Hlekkur í gagnaskil 
    • Ef ekki er hægt að nota gagnaskil, er eyðublaðið fyllt út rafrænt, prentað út og sent í ábyrgðarpósti til Geðheilsuteymis.
    • Geðheilsuteymi Austur
      • Geðheilsuteymi austur þjónar íbúum Breiðholts, Árbæjar, Grafarvogs, Norðlingaholts, Grafarholts, Kjalarness og Mosfellsbæjar.
    • Geðheilsuteymi Vestur
      • Geðheilsuteymi vestur þjónar íbúum á mið og vestursvæði borgarinnar, póstnúmerum 101-108 og 170.
    • Geðheilsuteymi Suður
      • Geðheilsuteymi suður þjónar íbúum í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.

 

  • Geðheilsuteymi HSA
  • Geðheilsuteymi HSN
  • Geðheilsuteymi HSS
  • Geðheilsuteymi HSU
  • Geðheilsuteymi HVE
  • Geðheilsuteymi HVEST

 

 

Háskólanemar

Háskóla Íslands (HÍ) 

  • Nemendaráðgjöf 
    • Bóka viðtal við námsráðgjafa
      • Námstengd erindi sendist áradgjof@hi.is og um úrræði í námi og prófum á urraedi@hi.is
      • eða í síma 525-4315.
    • Sálfræðiþjónusta Nemendaráðgjafar Háskóla Íslands
      • Miðað er við 1 til 3 viðtöl á misseri. 
      • Veitt er ráðgjöf og stuðningur í einstaklingsviðtölum sem eru gjaldfrjáls fyrir nemendur skólans.
      • Beiðni um viðtal hjá sálfræðingum HÍ sendist ásalfraedingar@hi.is
      • Þjónustan felur ekki í sér ADHD greiningu. 
      • Viðtölin geta farið fram á íslensku, ensku, dönsku eða þýsku.

 

  • Sálfræðiráðgjöf háskólanema
    • Sálfræðiráðgjöf háskólanema er þjálfunarstöð meistaranema í klínískri sálfræði. Þar er háskólanemum og börnum þeirra boðið upp á sálfræðiþjónustu. Sálfræðinemarnir veita þjónustuna undir handleiðslu sérfræðinga í klínískri sálfræði. 
    • Fyrsta viðtal er alltaf greiningarviðtal og tekur að oftast um 90 mínútur. Í þessu viðtali er farið yfir sögu, það er farið í gegnum staðlað geðgreiningarviðtal og metið hvort þörf sé á skammtímameðferð sem meistaranemendur geta veitt eða hvort málinu þurfi að vísa annað.
    • Meistaranemar veita hugræna atferlismeðferð fyrir fullorðna við þekktum vandamálum svo sem þunglyndi, félagsfælni, ofsakvíða, svefnleysi, einfaldri fælni og áfengismisnotkun. 
    • Meðferðin er oftast um 10 skipti en styttri við vissum málum ss. svefnvanda, fælni og áfengisvanda.
    • Fyrir börn háskólanema: hegðunarráðgjöf og kvíðameðferð. Ekki ADHD eða einhverfu greiningu.
    • Viðtalið kostar 1500 kr.

Vinna / Starfstengd vanlíðan

Svefn

  • Vefsvæði Betri Svefn sálfræðistofu sem sérhæfa sig í svefnvanda. 
    • Fræðsla um svefn. 
    • Sérhæfð rafræn meðferð og einstaklingsmeðferð á stofu. 
  • Smáforritið shesleep sem er hannað fyrir konur.

Kvíðaraskanir, þunglyndi og áfallastreituröskun

Mat á vanda

  • Sálfræðingar á heilsugæslu
  • Hægt er að vísa til sálfræðinga fullorðinna á heilsugæslustöðvum til þess að fá ítarlegt geðgreiningarviðtal þar sem áhersla er lögð á að greina algengan geðheilbrigðisvanda ss. kvíðaraskanir, þunglyndi og áfallastreituröskun. 
  • Einnig er skimað fyrir öðrum vanda ss. átröskun og geðrofseinkennum. 
  • Víða um land er notast við rafrænan spurningalista við upphaf þjónustu sem sendur er í heilsuveru, ásamt PHQ9 og GAD7 til þess að flýta fyrir þjónustu og bæta gæði matsins. Víða er þeim lista fylgt eftir með matsviðtali í síma sem tekur uþb 60 mínútur. 
  • Alltaf boðið upp á túlkaþjónustu í viðtölum ef notandi talar ekki íslensku eða ensku reiprennandi. 
  • Við lok matsferlis er hægt að veita ráðgjöf, bjóða þjónustu innan heilsugæslu eða vísa viðkomandi á viðeigandi úrræði eða í viðeigandi úrræði innan heilbrigðiskerfisins í samráði við tilvísanda. 
  • Greiningarleið ÞOK teymis LSH
  • Hægt er að vísa áfram í greiningu innan LSH ef þarf ítarlegri greiningu vegna flóknari vanda eða sérhæfðari  eins og ef til staðar er annar vandi til viðbótar við kvíðaröskun, þunglyndi, áfallastreituörskun ss. átröskun, persónuleikaröskun, geðhvarfasýki etc. 

Vægur vandi - meðferð

  • Lágþrepaúrræði
  • Víða um land er boðið upp á lágþrepaúrræði í sálfræðiþjónustunni í samræmi við klínískar leiðbeiningar fyrir vægan vanda, almenna kvíðaröskun eða væg einkenni depurðar eins og hópmeðferðir eða rafrænar meðferðir. 

Vægur til miðlungsalvarlegur klínískur vandi - meðferð

  • Heilsugæslan
    • Sálfræðingar á heilsugæslustöðvum veita meðferð við kvíðaröskunum, þunglyndi og áfallastreituröskun
    • Hægt er að leita til heilsugæslu á opnunartíma en hér má finna næstu heilsugæslustöð.

Alvarlegur eða flókinn vandi - meðferð

  • ÞOK teymi LSH. 

Ungt fólk stuðningsúrræði

  • Bergið headspace 
    • Sími 571-5580
    • Stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri. 
    • Boðið upp á ráðgjöf og fræðslu. Opið 9-17. Sækja um þjónustu hér. 

Félagslegur stuðningur - búseta, matur, fjárhagssstuðningur

Fjárhagsstuðningur

 

 

Matarstuðningur

Kaffistofa Samhjálpar. Borgartúni 1a (gengið inn frá Guðrúnartúni)

    • Opið alla daga ársins frá kl.10-14. 
    • Starfsemi Kaffistofunnar er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálfir. Athugið að Kaffistofa Samhjálpar er eingöngu fyrir þá sem náð hafa 18 ára aldri og ekki viðeigandi að börn komi hingað inn. Í Kaffistofu Samhjálpar sækir meðal annars fólk sem neytir áfengis- og fíkniefna auk fólks sem glímir við andleg og líkamleg veikindi af ýmsum toga.

 

Búseta

  • Áfanga- og stuðningsheimili fyrir karlmenn 
    • að Miklubraut 18. Rekið í samvinnu við Félagsþjónustuna í Reykjavík og er heimili fyrir átta heimilislausa Reykvíkinga. 
    • að Dalbrekku 27 (Nýbýlavegi 30) í Kópavogi. Rekið fyrir velferðarsvið Kópavogs. Þar eru átta rúmgóð einstaklingsherbergi en heimilismenn eru í virku sambandi við félagsráðgjafa á vegum Kópavogsbæjar. 
 

 

 

Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu 

Álfabakka 16 - sími 513-6300

throunarmidstod@heilsugaeslan.is

Development Centre for Primary Healthcare in Iceland (DCPHI)

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira