Hlutverk lyfjasviðs innan Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu er að vinna að stefnumótun í lyfjamálum innan heilsugæslunnar á landsvísu sem og að sinna vísinda- og gæðaþróunarverkefnum.
Jafnframt er hlutverk lyfjasviðs að vinna að þverfaglegu samstarfi innan heilsugæslunnar með ýmiskonar fræðsluefni til annarra heilbrigðisstétta og almennings um lyf og lyfjaávísanir, gerð verklagsreglna og taka þátt í samstarfsverkefnum.