Einstaklingsmiðuð áætlun felur í sér heildstæða áætlun fyrir skjólstæðing sem er í þjónustu í heilsueflandi þjónustu. Hér eru dregnir fram þeir verkþættir sem hafa þarf með þegar slík áætlun er gerð. Einstaklingsmiðaða áætlunin er síðan gerð í samvinnu við skjólstæðinginn og er sérstaklega sniðin að þörfum hans.
- Skjólstæðingar þurfa að hafa fengið greinagóðar upplýsingar um eigin heilsu og ástand og vera virkir þátttakendur í sinni meðferð/áætlun. Þannig geta þeir tekið upplýstar ákvarðanir í samráði við meðferðaraðila sína.
- Samkomulag og samþykki þarf að vera á milli skjólstæðings og þjónustunnar um innihald og framkvæmd einstaklingsmiðuðu áætlunarinnar.
- Tilgreina þarf „málastjóra“ (hjúkrunarfræðing) sem er ábyrgur fyrir samhæfingu áætlunarinnar.
- Ákveða hvernig þáttum áætlunarinnar er skipt á milli heilbrigðisstarfsmanna sem taka þátt í þjónustunni við skjólstæðinginn.
- Eftirfylgd er einstaklingsmiðuð og tekur mið af verkþáttum sem koma fram í einstaklingsmiðuðu áætluninni.
- Eftirfylgdin getur farið fram rafrænt (fjarviðtal, netspjall), símleiðis eða með viðtali á stöð.
- Áætlunin er endurskoðuð eftir þörfum með tilliti til verkþátta og gerðar eru viðeigandi breytingar í samráði við skjólstæðinginn.
- Taka þarf tillit til hvers konar fötlunar og/eða hindrana, þar með talið sjónskerðingar, þegar skipulögð er áætlun og umönnun fólks með langvinnan heilsuvanda.
Dæmi um einstaklingsmiðaða áætlun: