Hlutverk og ábyrgð verklags eiga við heilbrigðisstarfsfólk og stjórnendur á heilbrigðisstofnunum
Heilbrigðisstarfsfólk
- Heilbrigðisstarfsmaður sem ber ábyrgð á meðferð skjólstæðings ber einnig ábyrgð á að kanna hvort barn sé í umsjá skjólstæðings. Hann kannar þarfir barns fyrir þjónustu og til dæmis býður að tengiliður barns sé virkjaður. (samkvæmt samþættingarlögum)
- Mæta þörfum barna fyrir upplýsingar, stuðning og eftirfylgd.
- Þarf að þekkja lög og viðbrögð sem gilda um börn sem aðstandendur.
Stjórnendur
- Bera ábyrgð á að upplýsa starfsmenn, innleiða verklag og bregðast við ef verklagi hefur ekki verið fylgt.
- Samræma og skipuleggja vinnuna hjá stofnuninni og/eða útnefnir þann sem samræmir og skipuleggur vinnuna.
- Tryggja að verkferlum sé framfylgt.
- Hafa yfirsýn yfir úrræði og leiðir sem nýtast barninu og fjölskyldunni innan og utan stofnunar.
- Hafa þekkingu á þörfum og aðstæðum barna sem eru aðstandendur og sinni fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu við aðra starfsmenn.
- Sjá um að íhlutun um barnið fari inn í aðrar áætlanir um þjónustu við fjölskylduna.
- Sjá til þess að samstarf sé við aðrar stofnanir.