Jafnvægistruflanir - Glassbones

Jafnvægistruflanir og byltur eru algengar meðal aldraðra. Líkur á byltum aukast með hækkandi aldri. Afleiðingar byltna geta verið ýmsir áverkar og brot. Í kjölfarið kemur oft kyrrseta, minni virkni og skert færni vegna ótta við að detta aftur.

Sett eru fram viðmið fyrir greiningu á áhrifaþáttum jafnvægistruflana. Stefnt er að því að fólk fái greiningu á heilsuvanda sínum snemma svo það geti notið góðs af viðeigandi meðferð og draga megi úr einkennum sem og bæta lífsgæði.

Byltuvarnir í heilsugæslu - þrír lykilþættir:

  1. SKIMUN - Greina byltuhættu hjá skjólstæðingum
  2. MAT  - Greina áhrifaþætti sem hægt er að meðhöndla
  3. ÍHLUTUN - Beita aðferðum sem draga úr áhrifaþáttum og minnka byltuhættu

Sett eru fram viðmið sem byggjast á mati á vísbendingum

  • Meta byltuhættu/jafnvægistruflanir með GLASSBONES matstæki. Aðaláhrifaþættir byltna samkvæmt GLASSBONES eru:
    • G - Greiningar
    • L - Lyfjayfirferð
    • A - Alkóhól og vímuefni
    • S - Saga (byltusaga)
    • S - Skoðun
    • B - Beinheilsa
    • O - Orthostatismi
    • N - Næring og vökvainntaka
    • E - Þvagleki (Elimination)
    • S - Skynjun

Hafa skal samráð við aðra fagaðila innan heilsugæslu út frá niðurstöðu greiningar.