Oft getur reynst erfitt að átta sig á muninum á lyfi, náttúrulyfi og náttúruvöru enda mikill hluti lyfja frá náttúrunni kominn. Talið er að að minnsta kosti þriðjungur hefðbundinna lyfja á markaði eigi fyrirmynd sína að rekja til efna sem finnast í náttúrunni. Best er að lýsa þessum mun út frá framleiðsluferlinu og öryggi lyfjanna.
Hefðbundin lyf sem læknir ávísar innihalda einungis tiltekin efni og hafa skilgreint innihald. Á þeim hafa verið gerðar fjölmargar rannsóknir og sýnt fram á að lyfið virki við ákveðnum sjúkdómum og séu örugg í venjulegum skömmtum. Vitað er nákvæmlega hversu mikið af efninu er í lyfinu, hverjar helstu aukaverkanir og milliverkanir eru og í hvaða aðstæðum megi alls ekki nota lyfið. Framleiðslan er undir ströngu gæðaeftirliti og lyfið er skráð hjá Lyfjastofnun sem hefur eftirlit með gæðum þess.
Náttúrulyf í tveimur flokkum
Náttúrulyf eru unnin á einfaldan hátt (t.d. með þurrkun, mölun, úthlutun, pressun) úr jurtum, dýrum, örverum, steinefnum eða söltum og þau innihalda oft fleiri en eitt efni. Náttúrulyf mega eingöngu vera ætluð til inntöku, samanber töflur, eða staðbundinnar notkunar á húð eins og krem eða smyrsli. Skammtastærðirnar eru staðlaðar, innihaldið er þekkt og sýna þarf fram á að framleiðslan uppfylli gæðakröfur.
Líkt og með lyf þá eru aukaverkanir skráðar. Hægt er að skipta náttúrulyfjum í tvo flokka. Annaðhvort þarf að sýna fram á að lyfið virki gegn ákveðnum sjúkdómi til að mega kallast náttúrulyf. Ekkert slíkt lyf er nú skráð á Íslandi. Hitt er að söguleg hefð sé fyrir notkun lyfsins. Þá hefur náttúrulyfið verið notað það lengi að talið er að það sé öruggt til notkunar. Þrjú slík náttúrulyf eru skráð á Íslandi, öll jurtalyf, og heita Glitinum, Lyngonia og Harpatinum. Eftirlit með þeim er í höndum Lyfjastofnunar.
Flóknar efnablöndur
Náttúruvörur eru oft flóknar efnablöndur. Þær flokkast með fæðubótarefnum. Náttúruvörur geta innihaldið náttúruefni og önnur efni eins og vítamín, steinefni og amínósýrur. Eins og á við um náttúrulyf þá er framleiðslan einföld. Innihaldið er hins vegar ekki þekkt og því ekki vitað almennilega hvað er í vörunni eða í hversu miklu magni. Engar kröfur eru gerðar um rannsóknir eða að sýnt sé fram á að efnið virki við ákveðnum einkennum, sé öruggt né að framleiðslugæðin séu tryggð. Allri ábyrgð er varpað yfir á neytendur. Eftirlitið er í höndum Matvælastofnunar en ekki Lyfjastofnunar líkt og með náttúrulyf og lyf.
Inntöku hætt við aukaverkanir
Náttúrulyf og -vörur geta haft áhrif á verkun lyfja. Þeir sem taka lyf ættu því að varast notkun þeirra, sérstaklega þegar um náttúruvöru er að ræða. Ástæðan er sú að ekki er alltaf vitað hvaða efni eru í vörunni eða í hversu miklu magni. Gögn um öryggi náttúruvara liggja því ekki fyrir og áhættan við notkun getur oft vegið meira en hugsanlegur ávinningur. Þungaðar konur, börn, aldraðir og einstaklingar á lyfjum ættu að forðast notkun náttúruvara. Ef einhverjar aukaverkanir koma fram líkt og kláði, útbrot, magaóþægindi eða höfuðverkur skal hætta inntöku strax. Ef einkennin eru mikil eða langvarandi skal hafa samband við lækni eða lyfjafræðing. Nánari upplýsingar er hægt að finna inni á heilsuvera.is
Anna Bryndís Blöndal og Kristján Linnet lyfjafræðingar á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu