Heilbrigðisþjónusta við börn sem eru þolendur ofbeldis

Heilbrigðisþjónusta við börn sem eru þolendur ofbeldis

Mynd af frétt Heilbrigðisþjónusta við börn sem eru þolendur ofbeldis
24.09.2026
Þann 23. september 2026 var haldinn kynningarfundur í húsnæði ÞÍH og á Teams um heilbrigðisþjónustu við börn sem eru þolendur ofbeldis. Kynningarfundurinn var á vegum ÞÍH, Heilbrigðisráðuneytisins og Landspítala. 

Sara Hrund Helgadóttir teymsstjóri og María Rut Beck miðlægur verkefnastjóri kynntu Ofbeldis- og áfallamóttöku barna á Landspítalanum sem opnaði 25. ágúst sl. 
Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir, sérfræðingur og Drífa Jónasdóttir, sérfræðingur hjá Heilbrigðisráðuneytinu kynntu verklag í 7. og 9. bekk grunnskóla tengt styrkingu á viðtali um heilsu og líðan barna til að koma fyrr auga á ofbeldi og óöryggi svo hægt sé að bregðast við. 

Fyrir fagfólk sem missti af kynningarfundinum má finna upptöku og glærur inni á læstri síðu ÞíH. Lykilorðið inn á hana má nálgast á throunarmidstod@heilsugaeslan.is.