Þegar barnið þitt er lasið - bæklingur

Mynd af frétt Þegar barnið þitt er lasið - bæklingur
10.07.2026

ÞÍH vekur athygli á nýjum bæklingi sem ætlaður er fyrir aðstandendur ungra barna til að fræða um smitsjúkdóma og sýklalyfjagát. Bæklingurinn heitir "Þegar barnið þitt er lasið. Nokkur ráð til þín sem átt barn á aldrinum 0-5 ára."

Bæklingurinn er að sænskri fyrirmynd og var þýddur og staðfærður úr leiðbeiningum STRAMA Region Stockholm. Már Egilsson sérfræðingur í heimilislækningum sá um þýðinguna með aðstoð frá fagfólki ÞÍH. 

Nálgast má bæklinginn á íslensku og ensku og er beinn hlekkur á bæklinginn hér: Þegar barnið þitt er veikt

Einnig má nálgast bæklinginn hjá Leiðbeiningum um ung- og smábarnavernd undir Fræðsla í öllum skoðunum. Sem dæmi má finna hann á þessum stað á heimasíðu ÞÍH: Fimm mánaða skoðun