Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir.
Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu,
Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka.
Í meðfylgjandi tengli má lesa viðtal við Ástþóru Kristinsdóttur, sérfræðing í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu um málefnið.
Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum
