Fræðsludagur sóttvarnalæknis og ÞÍH um bólusetningar var haldinn þann 5. maí 2026 á Hótel Reykjavík Natura. Þetta var í níunda sinn sem fræðsludagurinn er haldinn. Hægt var að tengjast fjarfundi í gegnum Teams og var þátttaka góð, bæði í sal og í streymi. Þátttökugjald var ekkert.
Dagskráin var fjölbreytt og umræður góðar. Fjallað var um bólusetningar frá fjölbreyttu sjónarhorni, svo sem reynslunni af nýlegum breytingum á fyrirkomulagi barnabólusetninga, þema alþjóðlegrar bólusetningaviku í íslensku samhengi, RSV ónæmisaðgerðir nýliðins tímabils, inflúensubólusetningar smábarna frá 2026, HPV bólusetningar í framhaldsskólum, bólusetningar fullorðinna í klínísku samhengi og leiðir til að ná betri árangri í bólusetningum fullorðinna.
Á myndinni má sjá Kamillu S. Jósefsdóttur, yfirlækni bólusetninga á sóttvarnasviði hjá embætti landlæknis og Eygló Björgu Helgadóttur kennslustjóra sérnáms í heilsugæsluhjúkrun á ÞÍH sem var fundarstjóri.
