Nú um miðjan ágúst var birt grein í tímaritinu Frontiers in Pharmacology um niðurstöður rannsóknar á nýgengi ávísana á gabapentín í tengslum við ávísun á ópíoíða og benzodíazepín/Z-lyf til langs tíma (Linnet K, Runolfsson BPL, Sigurdsson JA, Gudmundsson LS – Incident gabapentin prescribing associated with opioid and benzodiazepine/Z-drug prescribing – a population-based longitudinal study in primary care – Front Pharmacol. 2025; 16: 1583415 doi: 10.3389/fphar.2025.1583415). Í rannsóknarteyminu eru starfsmenn Þróunarmiðstöðvar og Háskóla Ísland.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna nýgengi ávísana á gabapentín í heilsugæslunni á Íslandi og hvort tengsl væru við langtíma ávísun á ópíoíða, benzodíazepín og Z-lyf, þ.e. til sjúklinga sem fengju þessum lyfjum ávísað samfellt á minnst þriggja ára tímabili. Skoðað var mynstur ýmissa langvinnra sjúkdóma hjá þýðinu ásamt notkun SSRI-lyfja til að ganga úr skugga um hvort þessi atriði gætu varpað ljósi á líkur á notkun gabapentíns.
Frá byrjun 2009 til loka 2012 höfðu 219.800 manns samskipti við heilsugæsluna og af þeim voru 94.840 einstaklingar á aldrinum 10-69 ára sem stóðust inntökuskilyrðin. Af þeim voru 82.251 sem töldust ekki til hóps langtímanotenda lyfjanna.
Nýgengishlutfall gabapentín-ávísana var metið með Cox aðhvarfsgreiningu og kom í ljós að notkun ópíoíða, benzodíazepína og Z-lyfja jók líkur á gabapentínnotkun. Nýgengishlutfallið var IRR=7,18: 95% CI 6,50–7,93). Dregin var sú ályktun að fara þyrfti með gát þegar gabapentíni væri ávísað þar sem saga um fyrri notkun ópíoíða, benzodíazepína og Z-lyfja gæti bent til vandamála við notkun gabapantíns.
Slóðin á greinina er: https://www.frontiersin.org/articles/10.3389/fphar.2025.1583415/full
