Tannverndarvika 31. janúar - 4. febrúar 2022

Mynd af frétt Tannverndarvika 31. janúar - 4. febrúar 2022
27.01.2022

Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands standa fyrir tannverndarviku dagana 31. janúar - 4. febrúar með skilaboðum til landsmanna um að huga vel að tannheilsunni. 

Í tilefni af tannverndarviku er nýtt mælaborð tannheilsu gert aðgengilegt á vef embættis landlæknis. Mælaborðið er gagnvirkt en þar eru birtar tölulegar upplýsingar, sem varða tannheilsu íslenskra barna. Mælaborðið byggir á gögnum frá Sjúkratryggingum Íslands og ná þau aftur til ársins 2005. Stefnt er að árlegri uppfærslu þessa mælaborðs.

Lesa má meira um tannverndarvikuna og mælaborð tannheilsu á vef embættis landlæknis