Ung- og smábarnavernd breytt vegna COVID-19

Mynd af frétt Ung- og smábarnavernd breytt vegna COVID-19
31.03.2020

Ung- og smábarnavernd heilsugæslunnar er afar mikilvæg þjónusta sem þarf að halda áfram þrátt fyrir COVID-19 faraldurinn. Þjónustan hefur því verið endurskipulögð með smitvarnir í huga.

Mælt er með þessu fyrirkomulagi þjónustunnar meðan ástandið varir:

  • Einungis eitt foreldri mæti með barnið í skoðanir í ung- og smábarnavernd.
  • Hjúkrunarfræðingar fara í heimavitjanir miðað við þarfir fjölskyldunnar. Ef hægt er þá er farið í a.m.k. eina heimavitjun og hjúkrunarfræðingur er síðan í reglulegu sambandi við foreldra í gegnum síma. 
  • Barn komi í 6 vikna skoðun á heilsugæslustöð. Hjúkrunarfræðingur skimar fyrir þunglyndi og kvíða hjá móður í 6 vikna skoðun eða í 9 vikna skoðun með símtali. 
  • Barn fái allar bólusetningar samkvæmt tilmælum sóttvarnalæknis. Mikilvægt er að fresta ekki þeim skoðunum ef mögulegt er.
  • Símaviðtal hjúkrunarfræðings í stað skoðunar við 9 vikna aldur, 10 mánaða aldur, 2½ árs aldur, ef þarf sökum álags á stöðvunum. Hjúkrunarfræðingur hefur samband við foreldra í gegnum síma í stað þess að fá barnið á heilsugæslustöðina. Hann fær upplýsingar um vöxt og þroska, hvernig gengur og veitir ráðgjöf í gegnum síma. Barnið komi þó í skoðun á stöð ef talin er þörf á því eftir símtal. Æskilegt að bjóða upp á 2½ árs skoðun síðar ef hægt er. 
  • Fresta má 4 ára skoðun eitthvað, en hafa í huga að í þessari skoðun er bæði bólusetning og sjónpróf.
  • Símaþjónusta er í boði fyrir foreldra í sóttkví. 
  • Mikilvægt að veikt foreldri mæti ekki með barn í ung- og smábarnavernd.