Í janúar tölublaði Læknablaðsins birtist fræðigrein eftir lyfjafræðingana Unni Sverrisdóttir, Freyju Jónsdóttur og Önnu Ingibjörgu Gunnarsdóttur og læknana Hildi Harðardóttur og Ragnheiði Ingibjörgu Bjarnadóttur.
Ragnheiður er hluti af teyminu sem starfar á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
Grein þessi er um notkun lyfja, fæðubótarefna og náttúruvara á meðgöngu. Hér á landi hefur lyfjanotkun á meðgöngu verið lítið rannsökuð og þetta er að því er við best vitum fyrsta rannsóknin á viðhorfi barnshafandi kvenna til lyfjanotkunar á meðgöngu og hvernig þær afla sér upplýsinga um lyfjanotkun á meðgöngu.
Þessi grein er mjög áhugaverð og hvetjum við alla til að lesa til fróðleiks og skemmtunar.