Fræðadagar 2.-3. nóvember 2017 – Framsækin heilsugæsla

Mynd af frétt Fræðadagar 2.-3. nóvember 2017 – Framsækin heilsugæsla
25.04.2017

Fræðadagar heilsugæslunnar verða haldnir 2. - 3. nóvember 2017. 

Yfirskrift daganna að þessu sinni er: Framsækin heilsugæsla -  gæðaþróun í brennidepli. Þetta sjónarhorn verður notað til að skoða viðfangsefni heilsugæslu frá ýmsum hliðum. 

Dagskrárvinna er í fullum gangi og verður dagskráin kynnt hér á vefnum í september. Hugmyndir og tillögur um umfjöllunarefni og/eða fyrirlesara eru vel þegnar. Sendið ábendingar um efni í gegnum Hafa samband formið hér á vefnum í fyrir 5. maí 2017.

Fræðadagar eru árlegur viðburður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og verða nú haldnir í níunda sinn. Þróunarsvið heilsugæslunnar hefur umsjón með Fræðadögum. 

Skipulagsstjóri Fræðadaganna  að þessu sinni er Jón Steinar Jónsson heimilislæknir, Heilsugæslunni Efstaleiti. Aðrir í nefndinni eru Elín Eiríksdóttir, Ósk Ingvarsdóttir, Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir og Sesselja Guðmundsdóttir.

Fræðadagarnir verða haldnir á Grand hóteli að vanda og skráning hefst 1. október.

Takið dagana frá og við hlökkum til að sjá ykkur á Fræðadögunum.